Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Samúel Karl Ólason skrifar 1. september 2026 10:51 Að minnsta kosti einn dróni lenti á fjölbýlishúsi í Kænugarði í nótt. AP/Francisco Seco Rússar gerðu í nótt umfangsmiklar árásir á Kænugarð og nærliggjandi svæði í Úkraínu, sjöttu nóttina í röð. Að minnsta kosti tólf létu lífið í árásunum en forseti Úkraínu segir nauðsynlegt fyrir Úkraínumenn að fá fleiri flugskeyti sem hægt er að nota gegn skotflaugum. Auk skotflauga notuðust Rússar einnig við þotuknúna sjálfsprengidróna og gerðu einnig árásir á Odesa við suðurströnd landsins.
Að minnsta kosti 21 særðist í árásum næturinnar en sex þeirra sem dóu voru starfsmenn opinbers lestarfyrirtækis Úkraínu. Úkraínumenn hefur um nokkurt skeið skort flugskeyti í Patriot-loftvarnarkerfi, sem eru einu loftvarnarkerfin sem Úkraínumenn eiga sem geta verið notuð til að skjóta niður skotflaugar. Sjá einnig: Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Rússa hafa notað mikinn fjölda þotuknúinna sjálfsprengidróna, sem erfiðara er að skjóta niður en eldri týpur, og margar skotflaugar til árása næturinnar. Hann segir íbúðarhús hafa orðið fyrir skemmdum og að þúsundir fjölskyldna séu án rafmagns. Forsetinn segir einnig að árásum Rússa sé sérstaklega ætlað að valda óbreyttum borgurum eins miklum skaða og hægt sé. Það takist Rússum þegar loftvarnir Úkraínumanna dugi ekki til. Hann segist þakklátur öllum þeim sem hjálpi Úkraínu við það að öðlast flugskeyti í loftvarnarkerfi og hjálpi með öðrum hætti. Gífurlega mikilvægt sé að Úkraínumönnum berist fleiri flugskeyti í haust. Líf séu í húfi. In many cities and communities, work to address the aftermath of the Russian attack has been ongoing since last night – nearly 350 first responders are involved in Kyiv and the region alone. A significant number of jet-powered drones and ballistic missiles were used in the… pic.twitter.com/8cg4ik0V2F— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) September 1, 2026 Þrátt fyrir flugskeytaskortinn tókst Úkraínumönnum að skjóta niður fimm skotflaugar, samkvæmt herforingjaráði ríkisins. Þá tókst þeim einnig að granda 187 sjálfsprengidrónum og sjö stýriflaugum. Varnarmálaráðuneyti Rússlands heldur því fram að 516 úkraínskir sjálfsprengidrónar hafi verið skotnir niður yfir átján héruðum landsins og Krímskaga. Eldur kviknaði í olíuvinnslu í Ust-Luga og þá líklega eftir drónaárás Úkraínumanna. An impact was recorded at Novatek's gas condensate processing and terminal complex in Ust-Luga, Russia. The facility is still burning following the strike. #Russia https://t.co/0LnnYKKUu3 pic.twitter.com/R9G32lA6Ty— NOELREPORTS 🇪🇺 🇺🇦 (@NOELreports) September 1, 2026
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Hernaður Tengdar fréttir „Þeir munu hengja mig“ Vladimír Pútín óttast það að binda enda á stríðið gegn Úkraínu án þess að ná fullum tökum á Donbas-svæðinu svokallaða. Hann er sagður telja að hann yrði ráðinn af dögum ef hann gerði það og þess í stað ætlar hann að leggja enn meira í stríðsreksturinn. 31. ágúst 2026 11:30 Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Úkraínsk stjórnvöld telja sig hafa njósnir um að Rússar hyggi á nýja sókn á landi gegn höfuðborginni Kænugarði og Tsjernihiv. Þá segjast Rússar ætla að hefja meiriháttar árásir á orkuinnviði Úkraínu. 31. ágúst 2026 08:40 Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Í það minnsta þrjátíu og sjö eru látin eftir drónaárás Rússa vestan við Kænugarð í nótt. Fjörutíu og tvö eru slösuð, þar á meðal fjögur börn, segja yfirvöld á staðnum. Tæp fjögur hundruð hafa verið flutt af svæðinu í kjölfar árásarinnar. 29. ágúst 2026 14:29 Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Tilgangur ferðar John Ratcliffe, forstjóra CIA, til Moskvu í vikunni var að hvetja Rússa til að setjast að samningaborðinu með Úkraínumönnum. Frá þessu greinir New York Times. 28. ágúst 2026 07:54 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira
„Þeir munu hengja mig“ Vladimír Pútín óttast það að binda enda á stríðið gegn Úkraínu án þess að ná fullum tökum á Donbas-svæðinu svokallaða. Hann er sagður telja að hann yrði ráðinn af dögum ef hann gerði það og þess í stað ætlar hann að leggja enn meira í stríðsreksturinn. 31. ágúst 2026 11:30
Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Úkraínsk stjórnvöld telja sig hafa njósnir um að Rússar hyggi á nýja sókn á landi gegn höfuðborginni Kænugarði og Tsjernihiv. Þá segjast Rússar ætla að hefja meiriháttar árásir á orkuinnviði Úkraínu. 31. ágúst 2026 08:40
Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Í það minnsta þrjátíu og sjö eru látin eftir drónaárás Rússa vestan við Kænugarð í nótt. Fjörutíu og tvö eru slösuð, þar á meðal fjögur börn, segja yfirvöld á staðnum. Tæp fjögur hundruð hafa verið flutt af svæðinu í kjölfar árásarinnar. 29. ágúst 2026 14:29
Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Tilgangur ferðar John Ratcliffe, forstjóra CIA, til Moskvu í vikunni var að hvetja Rússa til að setjast að samningaborðinu með Úkraínumönnum. Frá þessu greinir New York Times. 28. ágúst 2026 07:54