Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Kjartan Kjartansson skrifar 31. ágúst 2026 08:40 Rústir og brak eftir rússneska loftárás á vöruhús við Kænugarð um helgina. Um fjörutíu manns féllu í árásinni sem er sú mannskæðasta á þessu ári til þessa. AP/Francisco Seco Úkraínsk stjórnvöld telja sig hafa njósnir um að Rússar hyggi á nýja sókn á landi gegn höfuðborginni Kænugarði og Tsjernihiv. Þá segjast Rússar ætla að hefja meiriháttar árásir á orkuinnviði Úkraínu.
Pavlo Palisa, aðstoðarskrifstofustjóri forsetaembættis Úkraínu, sagði blaðamönnum að stjórnvöld í Kreml hefðu falið hershöfðingjum sínum að undirbúa árásir á borgirnar tvær. Njósnir sem Úkraínumenn hefðu fengið og staðfest bentu til þess, að því er segir í frétt Politico. Ekkert benti þó enn til þess að Rússar væru byrjaðir að safna liði til sóknarinnar. Palisa sagði Úkraínumenn róa að því öllum árum að koma í veg fyrir að Rússar gætu sótt frekar fram. Rússaher reyndi að taka Kænugarð með landgönguliði í upphafi allsherjarinnrásarinnar í febrúar 2022 en Úkraínumenn ráku hann á bak aftur. Gætu hafið nýja herkvaðningu Ýmis teikn hafa verið á lofti undanfarið um að rússnesk stjórnvöld ætli sér að stigmagna átökin. Wall Street Journal sagði frá því nýlega að þau gætu ráðist í frekari herkvaðningu. Yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar CIA fór óvænt til Moskvu í síðustu viku til þess að tala við rússneskan starfsbróður sinn. Hann er sagður hafa varað Rússa við að efna ekki til ófriðar við aðildarríki Atlantshafsbandalagsins. Hefna árása á olíuinnviði Rússneska varnarmálaráðuneytið sagði um helgina að það ætlaði að láta sverfa til stáls gegn orkuinnviðum Úkraínu. Það eigi að vera hefndaraðgerð vegna ítrekaðra drónaárása Úkraínumanna á olíuinnviði Rússa á undanförnum vikum og mánuðum. Viðvarandi rafmagnsleysi var víða í Úkraínu síðasta vetur vegna árása Rússa á orkuver og flutningskerfi.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Hernaður Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira