Stjörnur Real Madrid léku sér í stórsigri á Malaga Andri Broddason skrifar 30. ágúst 2026 17:05 Kylian Mbappe skoraði þriðja mark Real Madrid í öruggum sigri. Vísir/getty/Jose Breton/ Real Madrid vann öruggan 4-0 sigur á Malaga í þriðju umferð spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Real Madrid er eina liðið í spænsku úrvalsdeildinni sem hefur unnið fyrstu þrjá leikina sína en Barcelona getur er getur leikið það eftir.
Jude Bellingham kom Real Madrid í forystu leiksins með glæsilegu marki. Hann fékk boltann rúmlega 20 metra frá marki, þræddi vörn Malaga og setti boltann örugglega í netið. Leikmenn Malaga kvörtuðu yfir því að Bellingham hafi slegið Angel Recio í andlitið í aðdraganda marksins en myndbandsdómgæsla staðfesti markið. Á 26. mínútu átti Real Madrid frábæra sókn sem endaði með skoti Mbappe sem fór í varnarmann og skaust upp í loftið. Þar voru Bellingham og Alfonso Herrero, markmaður Malaga, í baráttu um að ná boltanum en boltinn fór af Herrero og í netið. Aðeins nokkrum mínútum síðar tryggði Mbappe Real Madrid þriggja marka forystu þegar hann kláraði frábæra fyrirgjöf frá Trent Alexander-Arnold. Eftir þriðja markið byrjaði leikurinn að róast enda lítill tilgangur fyrir Real Madrid að rembast við að ná mörkum þar sem Malaga var lítið að ógna. Lokamark leiksins kom í uppbótartíma þegar Madrídar-liðið vann boltann og keyrði á vörn Malaga. Vinicius Jr. keyrði upp að endalínu og gaf til baka á varamanninn Arda Guler sem kláraði færið vel og innsiglaði 4-0 sigur. Næsti leikur Real Madrid verður gegn Real Betis í næstu viku.
Spænski boltinn Real Madrid CF Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira