Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 28. ágúst 2026 07:54 Sögum ber ekki saman um ástæðu heimsóknar Ratcliffe til Moskvu en ef marka má miðla vestanhafs hafði hann margt að ræða við kollega sinn. Getty/Andrew Harnik Tilgangur ferðar John Ratcliffe, forstjóra CIA, til Moskvu í vikunni var að hvetja Rússa til að setjast að samningaborðinu með Úkraínumönnum. Frá þessu greinir New York Times.
Miðillinn segir Ratcliffe hafa fundað með Aleksandr V. Bortnikov, yfirmanni leyniþjónustunnar FSB. Fundurinn hafi miðað að því að upplýsa Rússa um mat CIA á stöðunni á vígvellinum. Sérfræðingar vestanhafs og víðar hafa löngum efast um það að ráðgjafar Vladimir Pútín Rússlandsforseta séu heiðarlegir gagnvart honum um raunverulega stöðu mála, bæði hernaðar- og efnahagslega. Samkvæmt New York Times hafa samskiptalínur verið opnar á milli Ratcliffe og Bortnikov, á sama tíma og sérlegir sendifulltrúar Donald Trump Bandaríkjaforseta, Steve Witkoff og Jared Kushner, hafa myndað tengsl við aðra ráðgjafa Pútín. Miðillinn hefur eftir embættismönnum innan bandaríska stjórnkerfisins að vonir hafi staðið til að Pútín myndi taka skilaboð Ratcliffe til Bortnikov alvarlegar en orðsendingar á milli annarra diplómata. Báðir í þröngri stöðu New York Times segir einnig að ráðamenn vestanhafs hafi staðið í þeirri meiningu á síðasta ári að sigur Rússa væri óumflýjanlegur, bæði vegna íbúafjölda og þeirrar staðreyndar að þeir ættu kjarnorkuvopn. Úkraínumenn hafa hins vegar reynst ótrúlega þrautsegir og verið afdráttarlausir varðandi það að þeir hyggist ekki gefa eftir austurhluta landsins, eins og Pútín hefur krafist. Ratcliffe er sagður hafa dregið upp þá mynd á fundinum að staða Rússa væri þröng, bæði hernaðar- og efnahagslega. Það væri tímabært að freista þess að semja við Úkraínumenn. Á sama tíma hefur hins vegar fjarað undan stuðningi Bandaríkjanna við Úkraínu og hún því háðari bandamönnum í Evrópu, þar sem stuðningurinn er sömuleiðis ótryggur. Hægriöfl í Þýskalandi og víðar, sem spáð er sigrum í komandi kosningum, eru til að mynda afar mis hrifin af því að halda áfram fjárhagsstuðningi við landið. Og framundan er harður vetur, fyrir báða aðila.
Bandaríkin Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira