Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna Kjartan Kjartansson skrifar 24. ágúst 2026 15:53 Meðlimir rússneska gjörninga- og andófshópsins Pussy Riot á sviði í Berlín árið 2024. Þrjár úr hópnum eru nú íslenskir ríkisborgarar. Vísir/EPA Fyrrverandi liðskona listahópsins Pussy Riot segir að hún hafi verið þvinguð til þess að vinna fyrir rússnesku öryggislögregluna FSB um þriggja ára skeið. Henni var smyglað út úr Rússlandi fyrr í mánuðinum.
Rússneskir fjölmiðlar greina frá því að Rita Flores, sem heitir réttu nafni Margarita Konovalova, hafi verið þvinguð til þess að vinna fyrir FSB eftir að útsendarar stofnunarinnar gerðu húsleit hjá henni árið 2023. Hún heldur því fram að henni hafi verið hótað því að verða drepin yrði hún ekki við kröfunni. Því hafi Konovalova safnað upplýsingum um listamenn og aðgerðasinna fyrir rússnesk stjórnvöld. Hún segir að FSB hafi meðal annars reynt að bendla hana við ráðabrugg um að ræna og myrða einn stofnenda Pussy Riot sem ekkert varð síðan úr. Sænska ríkisútvarpið segir að Konovalovu hafi verið smyglað út úr Rússlandi fyrr í þessum mánuði. Hún segist greina frá samstarfi sínu við FSB nú til þess að hjálpa öðrum í sömu stöðu. Þær Nadezhda Tolokonnikova, Mariia Alekhina og Liudmila Shtein hafa fengið íslenskan ríkisborgararétt á undanförnum árum en þær voru allar liðskonur Pussy Riot. Pussy Riot öðlaðist heimsfrægð þegar meðlmir hennar ruddust inn í Kirkju krists lausnara í Moskvu árið 2012 til þess að andæfa rússneskum stjórnvöldum og rétttrúnaðarkirkjunni. Meðlimir sveitarinnar hafa, líkt og aðrir aðgerðasinnar og andófsfólk í Rússlandi, sótt ofsóknum stjórnvalda heima fyrir. Shtein var meðal annars dæmd í fangelsi í heimalandinu vegna samfélagsmiðlafærslna sem hún skrifaði gegn innrásarstríði Rússa í Úkraínu.
Rússland Andóf Pussy Riot Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira