Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Samúel Karl Ólason skrifar 21. ágúst 2026 16:13 Að minnsta kosti fimm eru látnir og margir tugir særðir eftir árásina. Almannavarnir Úkraínu Að minnsta kosti fimm eru dánir og níutíu særðir, þar af margir alvarlega, eftir að drónaárás var gerð á verslunarmiðstöð í Kryvyi Rih í Úkraínu í dag. Að minnsta kosti tveimur rússneskum sjálfsprengidrónum var flogið á verslunarmiðstöðina þegar fjöldi manns var þar inni.
Eldur kviknaði vegna árásarinnar og eru skemmdirnar á verslunarmiðstöðinni miklar. Notast var við þotuknúna sjálfsprengidróna, samkvæmt myndböndum af vettvangi. Árásin var gerð um klukkan 16:30 að staðartíma og í tveimur bylgjum. Seinni bylgjan er sögð hafa verið gerð um hálftíma eftir að fyrsti dróninn, eða drónarnir, skullu á verslunarmiðstöðinni. Á ensku eru árásir sem þessar kallaðar „Double-Tap“ árásir og eru þær iðulega gerðar af hryðjuverkamönnum víðsvegar um heiminn og er þeim ætlað að valda miklu mannfalli meðal viðbragðsaðila sem bregðast við fyrstu árásinni. Rússar voru á árum áður ítrekað sakaðir um árásir sem þessar í Sýrlandi en þeir hafa einnig gert fjölmargar í Úkraínu. Sjá einnig: „Veiddu“ grænmetissala með dróna Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir árásina vera viðurstyggilega. Þetta sé ekkert nema hryðjuverkaárás og alþjóðasamfélagið þurfi að bregðast við. Kryvyi Rih er í Dnipropetrovsk-héraði í suðurhluta Úkraínu en er tiltölulega langt frá víglínunni. Russia struck Kryvyi Rih's largest shopping complex, local officials say. As of now, the regional administration reports 2 killed and 50 wounded, including 6 children. pic.twitter.com/VZEuzuMtfc— WarTranslated (@wartranslated) August 21, 2026 Russians have just bombed a crowded shopping mall with several drone strikes in Ukraine's city of Kryvyi Rih.There are many dead ahd wounded. pic.twitter.com/zp9tEoKxLA— SPRAVDI — Stratcom Centre (@StratcomCentre) August 21, 2026
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira