Viðskipti innlent

For­stjórarnir sem möluðu gull í fyrra

Árni Sæberg skrifar
Gunnar, Árni og Eldur voru launahæstir Íslendinga í fyrra.
Gunnar, Árni og Eldur voru launahæstir Íslendinga í fyrra. Vísir

Forstjórar landsins gerðu það gott í fyrra en fjórtán þeirra voru með meira en tíu milljónir króna á mánuði í útsvarsskyldar tekjur í fyrra. Sá launahæsti fékk rúmlega 46 milljónir króna á mánuði.

Líkt og greint var frá í dag er Árni Sigurðsson, aðstoðarforstjóri JBT Marel, skattakóngur ársins 2025, með 46 milljónir á mánuði. Rétt er að árétta að þar er um allar útsvarsskyldar tekjur að ræða og þær þurfa ekki að endurspegla föst laun Árna. Þetta kemur fram í Tekjublaði Frjálsrar verslunar, sem kom út í dag.

Þá má nefna að fjármagnstekjuskattur er tekinn út fyrir sviga í samantekt Frjálsrar verslunar og því er ekki loku fyrir það skotið að einhver annar en Árni hafi lagt mest til samneyslunnar í fyrra.

Samkvæmt Tekjublaðinu var Eldur Ólafsson, stofnandi og forstjóri Amaroq Minerals, næstlaunahæstur Íslendinga í fyrra, með 39,5 milljónir króna á mánuði. Þá hafi Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls, verið þriðji launahæstur með 33,5 milljónir króna á mánuði.

Hér að neðan má sjá lista yfir tuttugu launahæstu forstjóra landsins í fyrra og laun þeirra í þúsundum króna:

  • Árni Sigurðsson, aðstoðarforstjóri JPT Marel, 46.250
  • Eldur Ólafsson, forstjóri Amaroq Minerals, 39.520
  • Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls, 33.510
  • Grímur Karl Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins, 19.423
  • Haraldur Líndal Pétursson, forstjóri Fagkaupa, 15.352
  • Orri Hauksson, stjórnarformaður First Water og fyrrverandi forstjóri Símans, 14.229
  • Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga, 12.593
  • Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri Skeljar, 12.529
  • Hjörtur Valdemar Erlendsson, forstjóri Hampiðjunnar, 12.369
  • Þorsteinn Kristjánsson, forstjóri Eskju, 11.928
  • Rannveig Rist, fyrrverandi forstjóri Rio Tinto á Íslandi, 11.275
  • Jóhann Ásgeir Baldurs, forstjóri Arctic Adventures, 10.590
  • Kári Stefánsson, fyrrverandi forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, 10.064
  • Jón Sigurðsson, forstjóri og stjórnarformaður Stoða, 10.028
  • Garðar Stefánsson, forstjóri Rapyd Europe, 9.524
  • Guðbrandur Sigurðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Brynju leigufélags, 8.618
  • Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar, 8.235
  • Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri og eigandi Kjarnavara, 7.948
  • Sigurgeir Guðlaugsson, framkvæmdastjóri Citalfort og fyrrverandi forstjóri Genís, 7.896
  • Andri Þór Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Ölgerðarinnar, 7.811





Fleiri fréttir

Sjá meira


×