Viðskipti innlent

Skor­dýr í dillinu

Lovísa Arnardóttir skrifar
Salling er danskt merki.
Salling er danskt merki. Aðsend

Aðföng hafa í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað kryddið Salling Øko Dild vegna skordýrs sem fannst í kryddinu. Ekki kemur fram í tilkynningu hvort skordýrið hafi fundist hér á landi eða annars staðar.

Kryddið var selt í verslunum Bónuss og Hagkaupa. Neytendur sem hafa keypt umrædda vöru eru beðnir um að hætta notkun hennar og farga henni en einnig má skila henni í versluninni þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. Nánari upplýsingar um innköllunina veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530 5600 eða í gegnum netfangið gm[hja]adfong.is.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

  • Vörumerki: Salling
  • Vöruheiti: Øko Dild
  • Strikamerki: 5712877909045
  • Lotunúmer og best fyrir dagsetning: 007221 og 009157
  • Best fyrir dagsetning:15.09.2027 og 25.03.2028
  • Nettómagn: 15 g
  • Framleiðandi: DAVA Foods Ingredients A/S í Danmörku





Fleiri fréttir

Sjá meira


×