Theodór Ingi var hetja Fylkis í endurkomusigri Andri Broddason skrifar 29. júlí 2026 20:30 Theodór Ingi Óskarsson skoraði tvö mörk í sygri Fylkis gegn Völsungi. Guðmundur/Vísir Fylkir náði mikilvægum sigri í toppslag Lengjudeildarinnar með sigri á Völsungi. Fylkir lenti undir snemma í seinni hálfleik en kom til baka og vann 3-1.
Fyrir leikinn var Fylkir í þriðja sæti Lengjudeildarinnar en pakkinn á toppnum er vel þéttur þar sem aðeins þrjú stig voru milli toppliðsins og fjórða sætis. Völsungur náði forystu leiksins á 48. mínútu þegar varnarmenn Fylkis hreinsuðu í hvorn annan og datt boltinn fyrir Elfar Árna Aðalsteinsson sem nýtti færið. Fylkismenn voru þó langt því frá búnir að gefast upp og voru staðráðnir í að vinna. Á tveggja mínútna kafla náði Fylkir forystunni með því að skora tvö mörk. Theodór Ingi Óskarsson jafnaði metin eftir langa sókn Fylkis og Hlynur Sævar Jónsson tryggði Fylkismönnum forystuna. Þessi tvö mörk slógu Völsung alveg af laginu og undir lok leiks náði Theodór Ingi að gulltryggja 3-1 sigur með sínu öðru marki. Þetta voru mikilvæg þrjú stig fyrir Fylki sem er í hörðum toppslag Lengjudeildarinnar. Völsungur náði ekki að tengja tvo sigra saman eftir að hafa unnið Grindavík í síðasta deildarleik. Liðið er enn fast í fallsæti með fjögur stig í næsta örugga sæti. Upplýsingar um markaskorara voru fengnar af Fótbolti.net
Lengjudeild karla Íslenski boltinn Fylkir Völsungur Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn „Stundum þarftu smá löðrung til að fara í fimmta gírinn“ Sport Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Körfubolti Horfðu á golfmót í körfubíl Golf Fleiri fréttir Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs „Munum líklega svekkja okkur í dag og svo heldur lífið áfram“ „Höfðum engu að tapa um leið og þær komast í 1-0“ Stefán Ingi og Brynjólfur skiluðu sínu í hörkuleik Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Hjörtur og Kolbeinn unnu þriðja leikinn í röð Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Valshjartað slær enn hjá hetju KR Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Logi á skotskónum þrátt fyrir tap Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield KR upp í Bestu deildina Albert náði ekki að endurtaka góða innkomu Malmö í frábærum málum MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Hull enn taplaust í deildinni Emilía hetja RB Leipzig Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Gefa út yfirlýsingu til varnar Fannari eftir „öfgafulla rangtúlkun“ Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Sjá meira