Blatter gagnrýnir áætlanir FIFA: „Mjög skaðlegt fyrir fótboltann“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júlí 2026 09:02 Sepp Blatter var mjög umdeildur forseti FIFA og hætti sem forseti FIFA árið 2015 eftir nokkur hneykslismál. Getty/Philipp Schmidli Sepp Blatter, fyrrverandi forseti FIFA, hefur bæst í hóp þeirra fjölmörgu sem hafa gagnrýnt þær áætlanir að hleypa fjárfestum að innviðum sambandsins eins og HM í fótbolta. Blatter tengir líka fjárfestaleit FIFA við samband Gianni Infantino og Donald Trump. „
Náið samband forseta FIFA og forseta Bandaríkjanna er nú einnig orðið fjárhagslegt sem er mjög skaðlegt fyrir fótboltann. Enginn hefur rétt til að selja leikinn okkar,“ skrifar Blatter á X með myllumerkjunum Gianni Infantino, Donald Trump, FIFA, UEFA, Bandaríkin og „sellout“. Yfirlýsingin kemur í kjölfar þess að FIFA, í samstarfi við stórbankann JP Morgan, vinnur að því að laða að utanaðkomandi fjárfesta í nýtt fyrirtæki undir nafninu FIFA Forward Enterprise. The close relationship between the FIFA President and the US President has reached a financial dimension that is deeply damaging football. No one has the right to sell our game. #GianniInfantino #DonaldTrump #FIFA #UEFA #USA #Sellout— Joseph S Blatter (@SeppBlatter) July 28, 2026 FIFA sendi frá sér fréttatilkynningu á þriðjudag þar sem sambandið staðfesti áætlanirnar, eftir að bæði The Times og Financial Times höfðu greint frá þeim fyrr um daginn. Blöðin skrifuðu að FIFA hygðist selja hlut í HM til utanaðkomandi aðila í gegnum nýja fyrirtækið. Knattspyrnusamband Evrópu sendi frá sér harðorða yfirlýsingu og boðaði neyðarfund hjá evrópsku samböndunum þar sem ræddur verður möguleikinn á því að sniðganga heimsmeistaramótið. Controversial plans around the World Cup have sparked fresh tensions between Uefa and Fifa. pic.twitter.com/QGyZrHYbUK— BBC Sport (@BBCSport) July 29, 2026 The Times skrifar að áætlunin sé að Gianni Infantino muni stýra nýja fyrirtækinu þegar forsetatíð hans hjá FIFA lýkur, en ekki er minnst á þær upplýsingar í langri fréttatilkynningu FIFA. Blatter sagði af sér sem forseti FIFA árið 2015 eftir nokkur hneykslismál. Infantino tók við af honum en hann hefur sjálfur orðið mjög umdeildur sem æðsti stjórnandi FIFA. Gagnrýnin hefur aukist verulega á síðasta ári með nokkrum atvikum þar sem samband Infantino og Trump hefur komið við sögu. FIFA intends to expand football development funding to over USD 10 billion subject to approval by FIFA Member Associations:— FIFA (@FIFAcom) July 28, 2026
FIFA Donald Trump UEFA Deilur um Gianni Infantino Tengdar fréttir UEFA mun ræða sniðgöngu á HM á neyðarfundi Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur brugðist mjög harkalega við fréttum um plön Gianni Infantino, forseta FIFA, að hleypa fjárfestum að innviðum sambandsins, þar á meðal HM í fótbolta. 29. júlí 2026 07:32 UEFA logar í ljósi áforma Infantino: „Sál fótboltans ekki til sölu“ Greina má reiði hjá stjórnendum Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, sem birti harðorða yfirlýsingu síðdegis. Tilefnið eru meint plön Gianni Infantino, forseta FIFA, að hleypa fjárfestum að innviðum sambandsins, þar á meðal HM í fótbolta. 28. júlí 2026 19:16 Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Sjá meira
UEFA mun ræða sniðgöngu á HM á neyðarfundi Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur brugðist mjög harkalega við fréttum um plön Gianni Infantino, forseta FIFA, að hleypa fjárfestum að innviðum sambandsins, þar á meðal HM í fótbolta. 29. júlí 2026 07:32
UEFA logar í ljósi áforma Infantino: „Sál fótboltans ekki til sölu“ Greina má reiði hjá stjórnendum Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, sem birti harðorða yfirlýsingu síðdegis. Tilefnið eru meint plön Gianni Infantino, forseta FIFA, að hleypa fjárfestum að innviðum sambandsins, þar á meðal HM í fótbolta. 28. júlí 2026 19:16