Fótbolti

Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Diljá Ýr Zomers fagnar öðru tveggja marka sinna í síðasta landsleik.
Diljá Ýr Zomers fagnar öðru tveggja marka sinna í síðasta landsleik. vísir/Anton

Diljá Ýr Zomers og félagar í Brann eru í góðum málum eftir fyrri leik sinn í átta liða úrslitum Evrópubikarsins. Það sama má segja um sænska Íslendingaliðið Hammarby.

Brann vann 3-0 sigur á Blikabönunum í Czarni Sosnowiec en pólska liðið sló Íslandsmeistara Breiðabliks út úr annarri umferð undankeppninnar, 7-2 samanlagt.

Diljá var í byrjunarliðinu í kvöld og Brann var komið þremur mörkum yfir eftir aðeins átján mínútur. Seinni leikurinn er úti í Póllandi og af því að sigurinn varð ekki stærri þrátt fyrir góða byrjun er enn smá spenna í þessu.

Brenna Lovera, fyrrum leikmaður Selfoss og ÍBV á Íslandi, skoraði tvö mörk í leiknum og þriðja markið var sjálfsmark. Diljá var tekin af velli á 88. mínútu.

Tvær íslenskar landsliðskonur, Guðrún Arnardóttir og Ída Marín Hermannsdóttir, voru í byrjunarliði Hammarby sem vann 3-1 útisigur á slóvakíska félaginu Spartak Myjava.

Hammarby komst yfir í 1-0 á meðan Ída Marín var inni á vellinum en fékk á sig jöfnunarmark fljótlega eftir að hún fór af velli. Sænska liðið átti aftur á móti lokaorðið og skoraði tvö mörk undir lokin.

Elin Åhgren Sørum, Mari Rosendal Nyhagen og Svea Rehnberg, varamaður Ídu, skoruðu mörkin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×