Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan Eiður Þór Árnason skrifar 28. júlí 2026 12:03 Aeon-verslunarmiðstöðin í Kashima í Kumamoto er stórskemmd eftir jarðskjálftann. Ap/kyodo news Um fjörutíu fóru slasaðir á sjúkrahús í Yatsushiro-borg í Japan eftir að jarðskjálfti að stærð 7,1 skók Kumamoto-hérað í morgun. Lest fór út af sporinu og valt á hliðina á lestarstöð í sömu borg og skemmdust steinveggir í Kumamoto-kastala.
Einhverjir eru fastir inni í verslunarmiðstöð, að sögn slökkviliðsins á svæðinu. Tilkynnt var um sprengingu í Aeon-verslunarmiðstöðinni í Kumamoto eftir skjálftann. Japanska fréttastofan NHK greinir frá því að vitni hafi séð sprengingu og reyk í verslunarmiðstöðinni. Vitnið sá aðra hæð byggingarinnar hrynja og voru nokkrir viðskiptavinir fluttir á sjúkrahús. Slökkviliðs- og hamfarastjórnunarstofnun Japans staðfesti síðar að önnur hæð „atvinnuhúsnæðis“ hefði hrunið og að margir væru fastir inni. Allt að þrjátíu starfsmanna saknað Japanska ríkisútvarpið NHK segir að starfsmanna Aeon Mall Kumamoto sé saknað og hefur eftir heimildarmönnum innan lögreglunnar að ekki hafi náðst samband við tuttugu til þrjátíu starfsmenn. Unnið sé að því að kanna hvort einhverjir séu fastir inni í verslunarmiðstöðinni. NHK hafði áður greint frá því að starfsmenn Aeon hefðu vísað viðskiptavinum út úr byggingunni áður en sprenging varð, að því er fram kemur í umfjöllun BBC. Rafmagnsleysi víða Jarðskjálftinn í dag olli engum skemmdum eða öryggisvandamálum í Sendai-kjarnorkuverinu, sem er í um 100 kílómetra fjarlægð frá upptökum skjálftans, að sögn Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar. Verið starfi áfram en fylgst verði með ástandinu. Skjálftinn mældist 7,1 að stærð. Sanae Takaichi, forsætisráðherra Japans, sagði að tilkynningar hefðu borist um fjölda meiðsla og skemmdir á vegum, brúm og byggingum. Þá hafi verið tilkynnt um rafmagnsleysi og eldsvoða en lítið væri um nánari upplýsingar. Takaichi hvatti fólk sem væri að elda til að fara varlega með eld og passa sig á glerbrotum en jarðskjálftinn reið yfir rétt fyrir klukkan 16:30 að staðartíma. Flóðbylgjuviðvörun var í fyrstu gefin út eftir skjálftann en dregin til baka innan við tveimur tímum síðar. Um sextíu eftirskjálftar BBC hefur eftir japönsku veðurstofunni að 61 eftirskjálfti hafa mælst í kjölfar fyrsta skjálftans í dag. Þeir hafi verið á bilinu eitt til sex stig að styrkleika. Til samanburðar segir að eftir jarðskjálftann í Kumamoto árið 2016, þar sem yfir þúsund manns slösuðust og meira en 40 létust, hafi skjálftar með sjö stiga styrkleika átt sér stað á tveggja daga tímabili. Japan notast við sinn eigin jarðskjálftastyrkskvarða sem nær frá núlli til sjö. Sjö þýðir að húsgögn færast úr stað eða kastast til í skjálfta. Slökkviliðs- og hamfarastofnun Japans sagði í morgun að engar tilkynningar hefðu borist um skemmdir á stórum opinberum mannvirkjum og innviðum en yfirvöld væru enn að meta umfang tjónsins. Slökkvilið á svæðinu fengu margar tilkynningar um eldsvoða og skemmdir á heimilum. Fréttin hefur verið uppfærð.
Japan Eldgos og jarðhræringar Tengdar fréttir Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Öflugur jarðskjálfti skók Kumamoto á japönsku eyjunni Kyushu í morgun og var hann 7,1 að stærð samkvæmt bráðabirgðamælingum. Japanska veðurstofan gaf út flóðbylgjuviðvörun vegna þessa. 28. júlí 2026 08:30 Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira
Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Öflugur jarðskjálfti skók Kumamoto á japönsku eyjunni Kyushu í morgun og var hann 7,1 að stærð samkvæmt bráðabirgðamælingum. Japanska veðurstofan gaf út flóðbylgjuviðvörun vegna þessa. 28. júlí 2026 08:30