Eldgos og jarðhræringar
1 2 3 4 5 6 … 140 ›
Enn gýs úr einum megingíg og virknin nokkuð stöðug Gosvirkni á Sundhnúksgígaröðinni hefur haldist nokkuð stöðug í nótt en strókavirkni verið aðeins meiri seinni hluta nætur. Gat sem myndaðist á gíg síðustu nótt hefur lokast og enn gýs úr einum megingíg. Innlent 29.7.2025 06:21
„Þetta er auðvitað stórhættulegt“ Ferðamenn sem ganga að eldgosinu í Sundhnúksgígaröðinni hafa almennt hagað sér vel, þrátt fyrir að einhverjir þeirra eigi það til að ganga út á hraunið, sem landeigandi segir stórhættulegt. Þá eru dæmi um utanvegaakstur á svæðinu. Innlent 28.7.2025 23:18
Vara fólk við því að ganga á nýrunnu hrauninu Virkni hefur verið nokkuð stöðug í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni frá því í gærmorgun en gat opnaðist á gígnum í gær og í gærkvöldi byrjaði að gjósa lítillega úr opinu. Innlent 28.7.2025 06:25
Stór jarðskjálfti í Vatnajökli Stór jarðskjálfti varð í Vatnajökli um klukkan 23:40 í kvöld. Var hann 5,2 stig. Innlent 28.7.2025 00:15
Virknin minnkað þó áfram gjósi Áfram gýs úr einum gíg í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni en gosvirknin hefur minnkað aðeins frá því síðustu daga. Enn rennur hraunið til austurs og suðausturs. Innlent 27.7.2025 07:25
Áfram gýs úr einum gíg Gosvirkni í eldgosinu á Sundhnúksgígaröð hefur verið stöðug frá því í gærmorgun. Áfram gýs úr einum gíg og hraunið rennur áfram til austurs og suðausturs. Gosmengun berst til austurs og suðausturs í dag og gæti orðið vart víða á Suðurlandi. Innlent 26.7.2025 07:20
Hægt nokkuð á virkninni frá því í gærmorgun Virni í eldgosinu á Sundhnúksgígaröð hefur hægt nokkuð á sér frá því í gærmorgun. Áfram gýs úr einum gíg og hraun rennur til austurs og suðausturs. Lítil eða hæg hreyfing er á ystu hraunjöðrum. Innlent 25.7.2025 06:11
Gasútstreymi minnkandi en gosmóðu enn spáð Gosvirkni í eldgosinu við Sundhnúksgígaröðina hefur hægt á sér síðan í gærmorgun. Enn gýs úr einum gíg og rennur hraunið áfram til austurs og suðausturs. Hraunið dreifir sér á breiðunni innan við einn kílómetra frá gígnum en lítil hreyfing er á ystu jöðrum þess. Innlent 24.7.2025 15:49
Gosmóða mælist í morgunsárið en ætti að minnka með deginum Gosvirkni á Sundhnúksgígaröðinni hefur verið nokkuð stöðug frá því í gærmorgun. Enn gýs úr einum gíg en hraunið rennur til austurs og dreifir úr sér innan við kílómetra frá gígnum. Innlent 24.7.2025 06:13
Slóðinn að gosinu einungis fyrir viðbragðsaðila og jeppa Icelandia Rafmagnshliði verður á næstu dögum komið fyrir á slóðanum að eldstöðvunum á Sundhnúksgígaröðinni og einungis bílum viðbragðsaðila og ferðaþjónustufyrirtækisins Icelandia hleypt inn. Formaður Landeigendafélagsins Hrauns segir forgangsmál að viðbragðsaðilar geti verið með skjótt viðbragð og því skipti máli að bílaumferð um slóðann sé ekki of þung. Innlent 23.7.2025 18:16
Gosmóðan fýkur á brott Gosmóðan sem hefur gert íbúum suðvesturhornsins lífið leitt síðustu daga fýkur að öllum líkindum á brott í norðaustur með vaxandi suðvestanátt í fyrramálið. Hennar verður þó enn vart á Suðurnesjum. Innlent 23.7.2025 10:29
Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Gosvirkni er enn stöðug í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni og líkt og í gær er hún bundin við einn gíg. Hraun rennur áfram til austurs í Fagradal. Innlent 23.7.2025 06:27
Loftgæði mun betri á höfuðborgarsvæðinu Loftgæði á höfuðborgarsvæðinu mælast töluvert betri í dag en í gær. Enn er þó svifryksmengun yfir Reykjanesskaga og á Ísafirði mælast loftgæði óholl. Á miðvikudag gæti síðan aftur farið að byggjast upp mengun á gosstöðvunum vegna hægs vinds. Innlent 22.7.2025 08:36
Virknin bundin við einn gíg: Gasmengunar gæti orðið vart á Suðurlandi Kraftur í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni hefur haldist óbreyttur en virknin er nú bundin við einn gíg, þar sem virkni í nyrðri gígnum datt niður um tíuleytið í gærkvöldi. Innlent 22.7.2025 06:25
Gosmóðan gæti setið sem fastast fram á fimmtudag: „Menn verða að taka þetta alvarlega“ Sigurður Þ. Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi Stormur, segir erfitt að segja til um hvenær gosmóðan sem nú liggur víða yfir landinu fari á brott. Mögulega verði það seint í nótt, en hún gæti einnig setið sem fastast þangað til á fimmtudag. Innlent 21.7.2025 21:02
Lokuð inni með lokað fyrir glugga í þrjá daga Töluverð gosmengun hefur legið yfir suðvesturhluta landsins síðustu daga og brennisteinsdíoxíð aldrei mælst hærra á höfuðborgarsvæðinu frá upphafi eldsumbrota á Reykjanesskaga. Kona með astma hefur haldið sig innandyra með lokaða glugga í þrjá daga og bíður í ofvæni eftir því að það blási. Innlent 21.7.2025 19:46
Aðstæður þær bestu síðan 2021: Bílastæði við eldgosið að fyllast Ferðaþjónustuaðili segir aðstæður á gossvæðinu á Reykjanesi vera með besta móti, svo minni á fyrsta eldgosið við Fagradalsfjall frá árinu 2021. Auðvelt sé að fara með ferðamenn að gosinu en bílastæði séu sneisafull og líklegt að bregðast þurfi við. Innlent 21.7.2025 12:00
Hæsta gildi brennisteinsdíoxíðs frá upphafi eldsumbrota Í morgun hafa mælistöðvar á höfuðborgarsvæðinu mælt há gildi brennisteinsdíoxíðs, og hafa hæstu tíu mínúta gildi farið upp í og yfir 2000 míkrógröm á rúmmeter. Eru þetta hæstu gildi brennisteinsdíoxíðs sem mælst hafa frá upphafi eldsumbrota á Reykjanesskaga. Innlent 21.7.2025 10:20
Enginn Vinnuskóli í Reykjavík í dag vegna gosmengunar Öll störf almennra hópa í garðyrkju hjá Vinnuskóla Reykjavíkur fellur niður í dag vegna gosmengunar. Frá þessu er greint í skilaboðum frá Vinnuskólanum. Innlent 21.7.2025 09:04
Óhollt magn brennisteinsdíoxíðs á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi Eldgosið á Sundhnúksgígaröðinni mallar áfram og enn er virkni í tveimur gígum. Gasmengun brennisteinsdíoxíðar mælist á suðvesturhorninu, ásamt gosmóðu. Innlent 21.7.2025 06:39
Flóðbylgjuhætta eftir stærðarinnar skjálfta í Rússlandi Jarðskjálfti að stærð 7,4 reið yfir í Kamchatka í Austurhluta Rússlands í morgun. Viðbragðsaðilar á svæðinu hafa í kjölfarið lýst yfir flóðbylgjuhættu. Erlent 20.7.2025 10:02
Móðan gæti orðið langvinn Gosmóðan frá Reykjanesskaga sem lagt hefur á Suðurland og Vesturland gæti varað í einhverja daga til viðbótar þar sem vindáttin er hæg. Hraun frá eldgosinu rennur austur og enn eru tveir gígar virkir. Innlent 20.7.2025 08:04
Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Skjálfti við Kleifarvatn fannst á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Innlent 20.7.2025 07:35
Gosmóðan liggur þétt yfir höfuðborgarsvæðinu og viðkvæmir hvattir til að vara sig Virkni eldgossins á Reykjanesskaga er mjög stöðug og búin að vera það frá í gærmorgun. Gosmóðan liggur þétt yfir suðvesturhorninu um þessar mundir og kemur hún ofan í þegar hlýtt og rakt loft. Innlent 19.7.2025 23:43
Gosmóðan heldur áfram Að minnsta kosti tveir gígar eru virkir í eldgosinu á Reykjanesskaga. Búist er við gosmóðu í dag. Innlent 19.7.2025 07:30
Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Eigendur lítilla og meðalstórra fyrirtækja í Grindavík ætla í skaðabótamál við ríkið. Eigandi gistihúss segir nýjustu lokanir í bænum þar sem gestum var meinaður aðgangur í tvo sólarhringa eftir eldgos hafa verið dropinn sem fyllti mælinn. Innlent 18.7.2025 22:32
Var ekki að láta undan þrýstingi Grindvíkinga Settur lögreglustjóri á Suðurnesjum segist ekki hafa látið undan þrýstingi þegar hún ákvað að opna Grindavík almenningi á ný heldur hafi ákvörðunin alfarið byggt á áhættumati af svæðinu. Innlent 18.7.2025 13:39
Búast við gosmóðu fyrir norðan og vestan næstu daga Gasmengunar frá eldgosinu við Sundhnúksgígaröðina hefur orðið viðvart víða um land. Kjöraðstæður eru fyrir gosmóðu og því varar Veðurstofan við útiveru í lengri tíma og áreynslu utandyra þar sem gasmengun mælist. Innlent 18.7.2025 11:57
Grindavík opin fyrir almenning á nýjan leik Opnað hefur verið fyrir umferð almennings um Grindavík. Lögregla varar fólk við að dvelja nærri gosstöðvunum og brýnir til fólks að nýjar gossprungur geti opnast með litlum fyrirvara og að skyndileg framhlaup geti orðið. Innlent 17.7.2025 20:44
Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Atvinnurekendur í Grindavík eru margir verulega ósáttir með takmarkað aðgengi að bænum. Einn slíkur segir það vanvirðingu við heimamenn að hleypa „ferðamanninum“ Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í skoðunarferð um svæðið meðan rekstraraðilar fá margir ekki að starfa vegna eldgossins sem stendur yfir nálægt bænum. Innlent 17.7.2025 16:20