Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 28. júlí 2026 10:44 Trump og Repúblikanar hafa leitað allra leiða til að hafa áhrif á úrslit kosninga, meðal annars með því að breyta lögum og kjördæmum. epa Stjórnvöld vestanhafs hafa farið fram á að Hæstiréttur Bandaríkjanna ógildi dóm alríkisdómstóls, sem aftur ógilti forsetatilskipun um takmarkanir á utankjörfundaratkvæðagreiðslum.
Donald Trump Bandaríkjaforseti undirritaði tilskipunina í mars síðastliðnum. Hún felur meðal annars í sér að heimavarnaráðuneytið myndi halda kjörskrár fyrir öll ríkin og að Póstmálastofnunin yrði skikkuð til að senda aðeins út kjörseðla samkvæmt skránum. Tilskipuninni var harðlega mótmælt af Demókrötum, meðal annars á þeim grundvelli að hún fæli í sér brot gegn nokkrum ákvæðum stjórnarskrárinnar. Þá væru þessi mál á forræði ríkjanna og þingsins, ekki framkvæmdavaldsins. Alríkisdómstóll komst, eins og fyrr segir, að þeirri niðurstöðu í júní að það væri ekki á valdi forsetans að tilhlutast um framkvæmd kosninga. Dómurinn var staðfestur af áfrýjunardómstól. Hæstiréttur hefur áður hindrað Trump í tilraunum hans til að þrengja að utankjörfundaratkvæðagreiðslum og staðfesti meðal annars lög í Mississippi sem kveða á um að telja beri utankjörfundaratkvæði ef þau voru póstlögð á kjördag. Utankjörfundaratkvæðagreiðslur eru nokkuð mikilvægar vestanhafs, þar sem þær gera fjölda fólks að kleift að nýta sér kosningarétt sinn sem komast ekki úr vinnu á kjördag.
Bandaríkin Donald Trump Hæstiréttur Bandaríkjanna Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Innlent Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Erlent Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Erlent Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Innlent Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Innlent Fleiri fréttir Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Sjá meira