Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 28. júlí 2026 06:54 Tumen-ársvæðið nær yfir landamæri Kína, Rússlands og Norður-Kóreu. epa/Yonhap Áhyggjur eru uppi af því að ný brú sem er að rísa á milli Rússlands og Norður-Kóreu verði notuð til að auka hernaðarsamvinnu milli ríkjanna og efla herafla Rússa í Úkraínu.
Brúin liggur yfir Tumen-á, milli Khasan í Rússlandi og Tumangang í Norður-Kóreu. Til stóð að opna á umferð yfir brúna í júní en því var seinkað vegna tafa Rússlands-megin. Yfirvöld í ríkjunum tveimur hafa ekki farið leynt með framkvæmdina en segja brúnni ætlað að stuðla að auknum viðskiptum og túrisma. Guardian hefur eftir Nazar Myhun, rannsóknastjóra hjá úkraínsku mannréttindasamtökunum Truth Hounds, að brúin muni hins vegar gera allt gervihnattaeftirlit með samvinnu ríkjanna erfiðara fyrir. Hingað til hafa Rússar og Norðurkóreumenn notað Vináttubrúna svokölluðu til að flytja gögn með lest yfir landamærin en Myhun segir nokkuð auðvelt að ætla hvað sé verið að flytja eftir því hvernig lestarvagnarnir líta út. Mun erfiðara sé að fylgjast með flutningabifreiðum, sem virðist allar eins á gervinhnattamyndum. Brúin er ennfremur sögð hafa kostað um það bil 100 milljónir dala, á meðan viðskipti milli ríkjanna námu aðeins um 34 milljónum dala árið 2024. Þá er áætlað að aðeins um 10 þúsund Rússar hafi heimsótt Norður-Kóreu í fyrra. Vólódimír Selenskí Úkraínuforseti hefur varað við því að Norður-Kórea hafi skuldbundið sig til að sjá Rússum fyrir um 30 þúsund hermönnum, til viðbótar við þá 14 þúsund sem hafa barist með rússneskum hersveitum í Kúrsk.
Norður-Kórea Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira