„Góðir tímar framundan“ Árni Gísli Magnússon skrifar 27. júlí 2026 23:40 Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs Akureyri Vísir/Hulda Margrét „Miðað við hvað við vorum slappir í fyrri hálfleik þá kannski fínt“, sagði Sigurður Höskuldsson, þjálfari Þórs, aðspurður hvernig honum liði með markalaust jafntefli gegn erkifjendunum í KA. „
Mér fannst við vel ofan í seinni hálfleik og pínu svekktur að hafa ekki bara unnið þennan leik miðað við yfirburðina fannst mér í seinni hálfleik, stöðurnar. Við höfðum bara ekki alveg nægilega mikla orku og lappir í það að klára sóknirnar okkar nægilega vel,“ „Vorum of oft í góðum stöðum og góðum færum til þess að búa til alvöru færi og klára þennan leik, pínu svekktur með það. Það hefur svona pínu loðað við okkur í sumar að bara ná ekki að klára sóknirnar okkar með skoti og það er mjög svekkjandi.“ Hvað gerðuð þið í seinni hálfleik sem varð til þess að frammistaðan var allt önnur en í fyrri hálfleik? „Bara mikil taugaspenna að koma hérna og það er bara eðlilegt að fyrri hálfleikur sé smá óstöðugur, mér fannst hann full óstöðugur og við vorum ekki nægilega rólegir á boltanum. Við vorum að hugsa að hugsa varnarleikinn, of lengi að lesa í það sem þeir ætluðu að gera þegar þeir voru að skipta honum hérna yfir og tvöfalda hérna hægra megin. Náðum ekki að stoppa, vorum að hleypa þeim alltof auðveldlega út úr þröngum stöðum, gerðum það miklu betur í seinni hálfleik, miklu rólegri á boltann.“ „Uppspilið breyttum því aðeins, breyttum varnarleiknum og leikmenn bara áttuðu sig á því að þetta var ekki nægilega gott í fyrri hálfleik og ætluðu að henda öllu í þetta og gerðu það. Mér fannst við bara mjög flottir hérna í seinni hálfleik og að einhverju leyti verðskulda sigur“. Þór þurfti að skipta nokkrum sinnum vegna meiðsla í dag sem riðlaði liðinu að einhverju leyti auk þess sem allar skiptingar liðsins voru búnar á 74. mínútu. „Nei nei, auðvitað hefur það áhrif. Þurftum að taka Kristó (Kristófer Kristjánsson) hérna út af út af einhverju smotteríi svo erum við að gera breytingu í hálfleik. Þetta er ekki gott en mér fannst við eiga bara ágætlega vel við það. Fúsi (Sigfús Fannar Gunnarsson) og Fannar (Daði Malmquist) kannski ekki alveg 90 mínútna menn til þess að vera klára leiki hérna fyrir okkur. Hefðum við fengið smá ferska fætur þar skilurðu þá held ég við hefðum lokað þessu en þeir stóðu sig frábærlega og hentu öllu í þetta. Bara svekkjandi að þurfa að taka (Christan) Greko (Jakobsen) út af.“ „Á endanum fannst mér við bara gera allt til að reyna vinna þennan leik. Mér fannst gott hugarfar, mér fannst orkustigið þegar við komum inn í seinni hálfleikinn einhver veginn hvernig við tökum yfir leikinn mjög gott og hugarfarið. Frábær inn koma hjá Þorra (Ingólfssyni), var geggjaður, Victor (Bertomeu) sem byrjar leikinn, nýi framherjinn okkar, mér fannst hann mjög flottur, sérstaklega svona í því sem hann er góður í þannig að mér finnst bara lofandi staða á liðinu núna. Þurfum aðeins að tjasla mönnum saman og held það séu góðir tímar framundan núna“. Þór hefur fengið inn þrjá leikmenn í glugganum, ef við teljum Aron Einar Gunnarsson ekki með þar sem hann er farinn aftur, og segir Sigurður að líklega bætist enn fleiri við áður en glugginn lokar. „Ég býst við að tökum einn, tvo leikmenn í viðbót, það er alveg klárt. Það eru smá hnökrar í hópnum ennþá og við eigum ennþá eftir að fylla í allavega eitt ef ekki tvö pláss.“
Besta deild karla KA Þór Akureyri Íslenski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira