Fölsk játning í formi lags Jón Þór Stefánsson skrifar 27. júlí 2026 14:09 D4vd bak við lás og slá, þegar hann var leiddur fyrir dómara á dögunum. EPA Lag í nafni bandaríska tónlistarmannsins D4vd, sem heitir réttu nafni David Anthony Burke, birtist á reikningi hans á streymisveitunni Apple Music á dögunum. Það að lag sé gefið út eitt og sér þarf ekki vera fréttnæmt, en það var svo í þessu tilfelli þar sem lagið var í raun játning á glæpum sem Burke er nú grunaður um að hafa framið.
Honum er gefið að sök að hafa myrt hina fjórtán ára gömlu Celeste Rivas Hernandez, og svo sundurbútað lík hennar og látið það rotna í skotti bíls síns, meðan hennar var leitað. Lögreglan hóf leit að Hernandez árið 2024, en lík hennar fannst í september síðastliðnum. Hann er jafnframt talinn hafa misnotað hana kynferðislega um nokkuð skeið. Nú er Burke í haldi og hefur verið ákærður fyrir þennan verknað. Málið er komið á borð dómstóla vestanhafs og til skoðunar hvort réttað verði yfir tónlistarmanninum. Hann neitar sök í málinu. Áðurnefnt lag birtist á Apple Music um helgina og ber titilinn „I did it“, eða „Ég gerði það“. Svo virðist sem aðgangur Burke hafi verið hakkaður, og laginu, sem sé ekki raunverulega frá honum komið, komið fyrir. Í viðlagi þessa falsaða lags er nafn stúlkunnar ítrekað sungið, henni lýst sem stúlkunni sem „bar nafn mitt húðflúrað á bringu sína“, og að angan hennar hafi fests í fötum hans líkt og sígarettur. Ljóðmælandinn segist jafnframt sakna hennar, og að hún muni endanlega elska hann þegar hann sjálfur muni deyja. Söngröddin þótti lík þeirri sem Burke hefur, en lagið hefur nú verið tekið út.
Erlend sakamál Bandaríkin Tónlist Tengdar fréttir Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Tónlistarmaðurinn David Burke, eða D4vid, stakk hina fjórtán ára gömlu Celeste Rivas Hernandez ítrekað og sagaði lík hennar í sundur með keðjusögum í bílskúr hans. Þetta gerði hann, samkvæmt saksóknurum, svo hún segði ekki frá því hvernig hann hefði brotið á henni kynferðislega. 30. apríl 2026 08:26 D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Bandaríski tónlistarmaðurinn D4vd, hefur verið handtekinn vegna gruns um að hafa orðið Celeste Rivas Hernandez að bana. Líkamsleifar Hernandez fundust í skotti Teslu-bifreiðar hans í fyrra. Hún var aðeins fjórtán ára þegar hún lést. Rétt nafn tónlistarmannsins er David Anthony Burke, hann er í dag 21 árs. 17. apríl 2026 08:42 Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Erlent Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Innlent Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Erlent Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Kourani farinn úr landi Innlent Fleiri fréttir Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Sjá meira
Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Tónlistarmaðurinn David Burke, eða D4vid, stakk hina fjórtán ára gömlu Celeste Rivas Hernandez ítrekað og sagaði lík hennar í sundur með keðjusögum í bílskúr hans. Þetta gerði hann, samkvæmt saksóknurum, svo hún segði ekki frá því hvernig hann hefði brotið á henni kynferðislega. 30. apríl 2026 08:26
D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Bandaríski tónlistarmaðurinn D4vd, hefur verið handtekinn vegna gruns um að hafa orðið Celeste Rivas Hernandez að bana. Líkamsleifar Hernandez fundust í skotti Teslu-bifreiðar hans í fyrra. Hún var aðeins fjórtán ára þegar hún lést. Rétt nafn tónlistarmannsins er David Anthony Burke, hann er í dag 21 árs. 17. apríl 2026 08:42