Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Áróra L Davíðsdóttir skrifar 21. júlí 2026 18:52 Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna fordæmdi í dag nýlega aukningu árása Ísraelshers á Gasa. Getty Minnst tólf létust í þremur árásum Ísraelshers á Gasa í gærnótt og dag, að sögn heilbrigðisyfirvalda á svæðinu. Vopnahlé milli Ísraels og Hamas er enn í gildi en rúmlega þúsund Palestínumenn hafa látist í árásum Ísraelshers frá því það var undirritað í október síðastliðnum.
Sex manna fjölskylda sem átti heima í vesturhluta al-Sabra hverfisins í Gasaborg eru meðal þeirra látnu, segir í umfjöllun breska ríkisútvarpsins. Ísraelsher segir Hamas-liða hafa verið skotmark árásarinnar og hún sé í rannsókn. Aðrir fjórir hafi látist í loftárásum Ísraelsmanna á al-Samar svæðinu í miðborg Gasaborgar, að sögn palestínskra fjölmiðla. Að auki hafi tveir látist í bíl á al-Zahra svæðinu í sunnanverðri borginni. Ísraelsher hafi ekki tjáð sig um þessar tvær árásir. Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna fordæmdi í dag auknar árásir Ísraelshers á Gasa. Að sögn heilbrigðisyfirvalda þar í borg hafa minnst 1.186 Palestínumenn og fjórir ísraelskir hermenn látist í árásum Ísraela síðan vopnahlé tók gildi í október síðastliðnum. Minnst 57 Palestínumenn hafi látist á tímabilinu 13. til 20. júlí, segir Thameen Al-Kheetan, talsmaður Sameinuðu þjóðanna. Hann varaði við því að dráp á almennum borgurum „veki áhyggjur af áframhaldandi brotum á alþjóðlegum mannúðarlögum, stríðsglæpum og öðrum mögulegum voðaverkum á Gasa.“ Frá árás Hamas á Ísrael þann 7. október 2023, þar sem um 1.200 Ísraelsmenn létust og 251 tekinn í gíslingu, hafa minnst 73.290 manns látist í árásum Ísraelshers á Gasa, að sögn heilbrigðisyfirvalda á svæðinu. Heilbrigðisyfirvöld á Gasa eru, líkt og önnur stjórnvöld þar, leidd af Hamas en stofnanir Sameinuðu þjóðanna og óháðir sérfræðingar telja sjúkraskrár þar almennt vera áreiðanlegar. Ekki er gerður greinarmunur á herafla og almennum borgurum en konur og börn eru sögð vera um helmingur látinna.
Átök í Ísrael og Palestínu Palestína Ísrael Tengdar fréttir Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Zohran Mamdani borgarstjóri skoðar ásamt lögfræðingum New York-borgar hvort mögulegt sé að handtaka Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, þegar hann sækir Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í september. 19. júlí 2026 20:25 Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira
Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Zohran Mamdani borgarstjóri skoðar ásamt lögfræðingum New York-borgar hvort mögulegt sé að handtaka Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, þegar hann sækir Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í september. 19. júlí 2026 20:25