Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Agnar Már Másson skrifar 21. júlí 2026 15:42 Mamdani íhugar að láta handtaka Netanjahú þegar hann kemur til New York. Vísir spurði utanríkisráðherra Íslands og Frakklands út í málið. Samsett Mynd Hvorki utanríkisráðherrar Íslands né Frakklands svöruðu því beint hvort þau myndu styðja hugsanlega handtöku Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, þegar hann kæmi til New York í september. Utanríkisráðherra Íslands segir að allar slíkar aðgerðir þurfi að vera samkvæmt alþjóðalögum.
Zohran Mamdani, borgarstjóri New York í Bandaríkjunum, sagðist í síðustu viku skoða það ásamt lögfræðingum borgarinnar hvort mögulegt væri að handtaka Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, þegar hann myndi sækja Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í september. Mamdani sagðist við New York Times trúa því að Netanjahú ætti heima í Haag. Hann væri hann stríðsglæpamaður. Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn gaf út kæru á hendur Netanjahú árið 2024, þar sem hann er sakaður um glæpi gegn mannkyninu og stríðsglæpi á Gasa. Borgarstjórinn sagði það engu að síður óljóst hvort hann mætti lögum samkvæmt skipa lögreglunni að handtaka erlendan leiðtoga. Í kjölfar blaðamannafundar utanríkisráðherra Íslands og Frakklands spurði blaðamaður ráðherrana hvort þeir myndu virða, eða jafnvel styðja, slíka handtöku ef til hennar kæmi. View this post on Instagram A post shared by Vísir (@visir.is) „Við veltum ekki fyrir okkur „ef“-um,“ svaraði franski utanríkisráðherrann Jean-Noel Barrot í samtali við fréttastofu. „Við rekkum ekki utanríkisþjónustu út frá sviðsmyndum,“ hélt Frakkinn áfram. „Það sem ég get sagt er að Frakkland stendur ávallt vörð um alþjóðalög og virðir alþjóðlega lögsögu og ver þau hvenær sem þau eru í hættu.“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra Íslands, svaraði hvorki af eða á. „Það sem ég vil segja í þessu er að það sem fyrst og síðast þarf að gera er að virða alþjóðalög. Ég vil bara beina því til Ísraela að fara að gera það þegar kemur að aðstæðunum á Gasa og á Vesturbakkanum,“ svarar Þorgerður. „En allar aðgerðir stjórnvalda annars staðar þyrftu að byggja á alþjóðalögum og alþjóðarétti og það er þannig sem við Íslendingar nálgumst hlutina.“
Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Palestína Sameinuðu þjóðirnar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Frakkland Utanríkismál Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira