Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Hólmfríður Gísladóttir skrifar 17. júlí 2026 06:54 Forsetanum er tíðrætt um það hversu auðvelt það er að „stela“ kosningum í Bandaríkjunu en enginn hefur gert jafn mikið og hann sjálfur til að hola kerfið að innan og grafa undan trausti. Getty/Anna Moneymaker Áhyggjur fara nú vaxandi af því að Donald Trump Bandaríkjaforseti og stofnanir undir honum muni freista þess að hafa áhrif á úrslit þingkosninganna í haust, ef þau verða óhagstæð. Trump fór mikinn í ræðu í nótt, þar sem hann reyndi enn og aftur að færa rök fyrir því að forsetakosningunum 2020 hefði verið „stolið“.
Meginþema ávarps Trump í nótt gekk út á það hversu óöruggar kosningar væru í Bandaríkjunum, hversu auðvelt væri að hafa áhrif á úrslitin og hversu viðkvæmar þær væru fyrir erlendum áhrifum. Þar nefndi hann Kína sérstaklega og ítrekað en Rússa aðeins einu sinni. Trump er enn að reyna að telja mönnum trú um að hann sé raunverulegur sigurvegari kosninganna 2020, þar sem Joe Biden var kjörinn forseti. Hann hefur ítrekað haldið því fram að kosningunum hafi verið stolið með svikum og prettum, án þess að gefa kosningunum 2016 og 2024, þegar hann vann, nokkurn gaum. Hið rétta er að Donald Trump hefur sjálfur gengið markvisst fram í því að hola þær stofnanir að innan sem hafa með kosningaeftirlit að gera og sent fulltrúa sína út af örkinni til að leggja hald á kosningagögn. Von á skelli í haust Trump sagði í nótt að hann hefði ákveðið að gera gögn opinber sem bentu til þess að kosningar í Bandaríkjunum væru afar viðkvæmar fyrir afskiptum. Samkvæmt erlendum miðlum styðja umrædd gögn hins vegar alls ekki þá niðurstöðu. Þess ber að geta að þrátt fyrir þráhyggju Trump gagnvart niðurstöðunni 2020 hafa rannsóknir yfirvalda ávallt leitt í ljós að kosningarnar það árið hafi verið einar þær öruggustu í sögu landsins. Aðeins um 37 prósent Bandaríkjamanna eru ánægðir með störf forsetans samkvæmt nýjustu könnunum. Margir eru afar óánægðir með það að lífskjör hafi ekkert batnað og þá er stríðsreksturinn í Íran síður en svo vinsæll. Spámenn meta líkurnar á því að Demókratar taki aftur fulltrúadeildina í þingkosningunum í haust yfir 80 prósent og þá eygja þeir fræðilegan möguleika á því að ná meirihluta í öldungadeildinni. Trump hefur brugðist við þróun mála með því að leggja mikla áherslu á kosninga„umbætur“, sem felast meðal annars í því að kjósendur framvísi fæðingavottorði eða skilríki með mynd á kjörstað. Þetta myndi hafa það í för með sér að fjöldi Bandaríkjamanna gæti ekki kosið, þar sem margir eiga engin slík skilríki. Þá eru uppi áhyggjur af því að stofnanir undir stjórn forsetans muni freista þess að hafa áhrif á úrslit kosninganna, til að mynda með því að leggja hald á atkvæði eða vélarnar sem notaðar eru til að kjósa.
Bandaríkin Donald Trump Þingkosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira