Íslenski boltinn

Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Fyrsti heimasigur FH á tímabilinu kom loks í gær.
Fyrsti heimasigur FH á tímabilinu kom loks í gær. vísir/diego

Alls var 21 mark skorað í fjórum leikjum í Bestu deild karla í gær. KA og FH unnu kærkomna sigra á meðan Fram og KR röðuðu inn mörkum.

Eftir að hafa tapað sex leikjum í röð sigraði KA ÍA, 3-2, fyrir norðan. Skagamenn komust í 0-2 með mörkum Gísla Eyjólfssonar og Rúnars Más Sigurjónssonar (víti) en Sveinn Margeir Hauksson jafnaði fyrir KA-menn með tveimur mörkum. 

Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði svo sigurmark heimamanna í uppbótartíma þegar hann fylgdi eftir vítaspyrnu sem Jón Sölvi Símonarson varði frá honum.

Gils Gíslason átti sannkallaða draumainnkomu þegar FH lagði Val að velli, 2-0. Gils kom inn á sem varamaður á 70. mínútu og níu mínútum síðar kom hann FH-ingum yfir. Hann bætti svo öðru marki við þegar ein mínúta var til leiksloka. Þetta var fyrsti heimasigur FH á tímabilinu.

Aron Sigurðarson skoraði tvö mörk þegar KR vann ÍBV, 5-2, og er orðinn markahæstur í deildinni með fjórtán mörk. Arnór Ingvi Traustason, Orri Hrafn Kjartansson og Eiður Gauti Sæbjörnsson skoruðu einnig fyrir KR-inga. Omar Sowe og Vicente Valor (víti) gerðu mörk Eyjamanna sem höfðu verið á mikilli siglingu áður en þeir mættu í Vesturbæinn.

Þá tók Fram Þór í bakaríið og vann 6-1 sigur á Lambhagavellinum. Haraldur Einar Ásgrímsson skoraði tvö mörk fyrir Framara og Freyr Sigurðsson, Ægir Jarl Jónasson, Kristófer Konráðsson og Jakob Byström sitt markið hver. 

Ágúst Eðvald Hlynsson skoraði mark Þórsara sem hafa ekki unnið í ellefu leikjum í röð, eða síðan þeir unnu Framara, 1-0, 23. apríl.

Mörkin úr leikjum gærdagsins í Bestu deild karla má sjá hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir

„Leikurinn sýnir að við erum að þróast í rétta átt“

Chris Brazell, þjálfari Vals, telur að spilamennska Valsliðsins sýni að liðið sé á leið í rétta átt þrátt fyrir að það hafi lotið í lægra haldi fyrir FH í kvöld. Chris var sérstaklega sáttur við hugarfarið í fyrri hálfleiknum og spilamennskuna í fyrri hluta seinni hálfleiks. 

„Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, var sáttur við karakterinn, spilamennskuna og liðsheildina hjá liðinu sem hann segir hafa lagt grunninn að sigrinum gegn Val í kvöld. FH er nú taplaust í síðustu fimm deildarleikjum sínum. 

Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“

Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, segir erfitt að kyngja tapi liðsins gegn KA í Bestu deildinni í kvöld, eftir að hafa verið 2-0 yfir eftir rúmlega klukkutíma leik. Hann segir sömu sögu endurtaka sig aftur og aftur og eitthvað þurfi að breytast.

Magnaður Sveinn Margeir: „Við eigum fullt inni“

„Þetta var sætt. Loksins skilaði sér þessi vinna sem við erum búnir að leggja inn og gaman að sjá þetta enda svona“, sagði Sveinn Margeir Haukson, leikmaður KA, eftir 3-2 endurkomusigur gegn ÍA í kvöld.

Uppgjörið: KR - ÍBV 5-2 | Eyjamenn sáu ekki til sólar í rokinu vestur í bæ

Eftir sex leiki án ósigurs var Eyjamönnum skellt á jörðina þegar liðið sótti KR heim í Vesturbænum. Lokatölur 5-2 í leik þar sem mörkin hefðu hæglega getað orðið fleiri. Leik liðanna í Eyjum lauk með 6-2 sigri KR og hafa Eyjamenn eflaust fengið nóg af því að spila við svarthvíta í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×