Íslenski boltinn

Líf til­nefnd til tvennra verð­launa

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Líf Joostdóttir van Bemmel fagnar hér markinu sem færði Breiðabliki Íslandsmeistaratitilinn.
Líf Joostdóttir van Bemmel fagnar hér markinu sem færði Breiðabliki Íslandsmeistaratitilinn. Vísir/Anton

Íslandsmeistarar Blika eiga þrjá af fjórum bestu leikmönnum Bestu deildar kvenna í fótbolta í sumar en það má sjá á því að þrjár Blikakonur enduðu í hópi fjögurra bestu leikmanna í kosningu leikmanna deildarinnar.

Besta deildin hefur gefið út tilnefningarnar fyrir verðlaun sín sem verða afhent eftir lokaleiki tímabilsins á morgun.

Þær fjórar sem eru tilnefndar sem besti leikmaður tímabilsins eru Blikarnir Agla María Albertsdóttir, Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir og Líf Joostdóttir van Bemmel og svo FH-konan Ída Marín Hermannsdóttir sem er reyndar orðin leikmaður Hammarby í dag.

Agla María var líka tilnefnd í fyrra en þá varð liðsfélagi hennar Birta Georgsdóttir kosin best.

Það er ekki nóg með að Líf sé þarna á lista heldur er hún einnig í hópi þeirra fjögurra leikmanna sem eru tilnefndar sem efnilegasti leikmaður deildarinnar.

Hinar þrjár sem enduðu í efstu sætum í kjöri leikmanna eru Þróttarinn Bríet Fjóla Bjarnadóttir, Stjörnukonan Fanney Lísa Jóhannesdóttir og FH-ingurinn Ingibjörg Magnúsdóttir.

Bríet Fjóla var líka tilnefnd í fyrra en þá var FH-ingurinn Thelma Karen Pálmadóttir kosin efnilegust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×