Sport

Af hverju fékk Veigar Páll eins árs dóm og hvort fellur KA eða Þór?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
BestaThor
vísir/guðmundur

Það er stór íþróttahelgi fram undan og svo sannarlega eitt og annað til að fara yfir. Besta sætið er líka í jólaskapi og tók nokkra jólatóna.

Breiðablik fær að lyfta Íslandsmeistaraskildinum í Bestu deild kvenna í kvöld en spurning hvort FH nái eitthvað að skemma teitið í Kópavogi.

Á morgun er svo ljóst að annað hvort KA eða Þór mun falla úr Bestu deild karla. Þór þarf bara að klára sitt verkefni gegn FH en KA þarf að vinna ÍBV og treysta á aðstoð frá FH. Afar áhugaverður dagur fram undan.

Njarðvíkingurinn Veigar Páll Alexandersson hefur verið dæmdur í eins árs bann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi. Besta sætið varpar betra ljósi á málið og reynir að útskýra af hverju hann fékk eins árs dóm.

Grindavík er svo komið á blað í Bónus deild karla og svo er spurning hvort Keflavík geti hægt á Álftnesingum í kvöld?

Enski boltinn kemur að sjálfsögðu við sögu en Michael Carrick gæti verið að stýra Man. Utd í síðasta sinn um helgina.

Besta sætið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×