„Förum inn í daginn til þess að njóta“ Henry Birgir Gunnarsson skrifar 23. október 2026 12:01 Agla María fagnar titlinum um síðustu helgi. Hún mun fagna meira í kvöld. vísir/Anton Breiðablik verður með mikla sigurhátíð í kvöld er liðið tekur á móti Íslandsmeistaraskildinum eftir leik sinn við FH.
Margir voru bjartsýnir á að þetta yrði hreinn úrslitaleikur um titilinn en þær vonir fuku út um veður og vind er FH steinlá á heimavelli sínum um síðustu helgi gegn Þrótti. Blikastúlkur gengu á lagið, lögðu Stjörnuna og tryggðu sér titilinn. „Það er tilhlökkun. Ég viðurkenni að það væri allt öðruvísi að fara inn í þennan leik ef þetta væri úrslitaleikur um titilinn. Núna förum við inn í daginn til þess að njóta,“ segir Agla María Albertsdóttir, fyrirliði Breiðabliks, en það þýðir samt ekki að það eigi að gefa einhvern afslátt í leiknum. „Auðvitað viljum við að sjálfsögðu vinna og við erum ekki að fara að leika okkur. Leikir spilast allt öðruvísi þegar það er allt undir. Ég held að þessi leikur verði opnari og skemmtilegri. Það verður bara gaman.“ Gleðin verður við völd á Kópavogsvelli í kvöld.vísir/Anton FH ætlar að koma í Kópavoginn til þess að skemma sigurhátíðina en Blikar ætla að sama skapi að sýna FH að þær séu verðugir meistarar. „Það er engin breyting á neinu hjá okkur. Við förum inn í leikinn til þess að vinna. Þetta er okkar heimavöllur og fullt af fólki vonandi að mæta. Við viljum bjóða því fólki upp á flotta frammistöðu og klára leikinn með stæl.“ Breiðablik var að vinna titilinn þriðja árið í röð og Agla er ánægð með liðið í sumar. „Þetta hefur verið langt tímabil og við höfum þurft að hafa mikið fyrir þessu. Við höfum tapað leikjum og það hafa verið sveiflur í frammistöðu. Heilt yfir höfum við sýnt mikla seiglu. Sama hvernig hefur gengið þá höfum við haft mikla trú á verkefninu,“ segir fyrirliðinn en gríðarlega miklar breytingar urðu á liðinu milli tímabila og því er uppskeran að mörgu leyti sætari núna. „Ég hafði alltaf trú á þessu þó svo það væru breytingar og þetta yrði krefjandi. Mér fannst þetta snúast um hvort við næðum að slípa þetta saman og hvort ungu leikmennirnir næðu að sýna hversu góðar þær væru orðnar. Þetta gekk allt upp. Þær voru frábærar. Nýju leikmennirnir komu sterkir inn og þetta small allt saman.“ Leikurinn hefst klukkan 18.00 og er í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland.
Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild kvenna Breiðablik Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Handbolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Fleiri fréttir „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Svona missti Aron markið sögulega Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Framlengir í Vesturbænum „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Sjá meira