Hélt haus eftir hrun og vann vinkonu sína í úrslitum Wimbledon Sindri Sverrisson skrifar 11. júlí 2026 18:12 Linda Nosková með Venusarrósavatnsdiskinn eftir sigurinn í úrslitaleik Wimbledon-mótsins 2026. Getty/Cameron Spencer Linda Nosková varð í dag þriðja tékkneska tenniskonan á síðustu fjórum Wimbledon-mótum til þess að vinna þetta virta risamót. Hún mætti löndu sinni og vinkonu, Karolinu Muchová, í spennandi úrslitaleik í dag.
Nosková leyfði tárunum að streyma og lagðist á jörðina, eftir sigur sinn í úrslitaleiknum í dag. Fjölskyldan fylgdist stolt með þegar þessi 21 árs gamla vonarstjarna vann risamót í fyrsta sinn. Það gekk þó ekki þrautalaust. Nosková vann fyrstu lotu reyndar af öryggi, 6-2, og komst í 5-2 í annarri lotu en virtist hreinlega fyrirmunað að tryggja sér endanlega titilinn. Svo fór að Muchová náði að vinna lotuna, 7-5, og tryggja sér oddalotu. Þar komst Nosková aftur í 5-2 en eflaust hefur farið um marga þegar hún tapaði svo næsta setti, áður en hún tryggði sér svo 6-3 sigur og þar með meistaratitilinn. Nosková hafði þá fengið fimm tækifæri til að skora úrslitastigið, án þess að takast það, en lét það ekki á sig fá og stóð uppi sem sigurvegari. Nosková var í 10. sæti á síðasta heimslista en Muchová í 11. sæti. Þær þekkja hvor aðra út og inn eftir að hafa oft æft saman og að auki spilað saman, til að mynda á Ólympíuleikunum í París 2024. Árangur þeirra undirstrikar enn stórkostlega stöðu Tékka í tennis kvenna en báðar hafa þær bent á innblásturinn sem Petra Kvitová veitti, með því að vinna Wimbledon 2011 og 2014. Marketa Vondrousova vann svo árið 2023 og Barbora Krejcikova árið 2024.
Tennis Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Vikings er eina ósigraða liðið Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Jökull sagður á leið til Blika sem standa á tímamótum Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Sjá meira