Sport

Hélt haus eftir hrun og vann vin­konu sína í úr­slitum Wimbledon

Sindri Sverrisson skrifar
Linda Nosková með Venusarrósavatnsdiskinn eftir sigurinn í úrslitaleik Wimbledon-mótsins 2026.
Linda Nosková með Venusarrósavatnsdiskinn eftir sigurinn í úrslitaleik Wimbledon-mótsins 2026. Getty/Cameron Spencer

Linda Nosková varð í dag þriðja tékkneska tenniskonan á síðustu fjórum Wimbledon-mótum til þess að vinna þetta virta risamót. Hún mætti löndu sinni og vinkonu, Karolinu Muchova, í spennandi úrslitaleik í dag.

Nosková leyfði tárunum að streyma og lagðist á jörðina, eftir sigur sinn í úrslitaleiknum í dag. Fjölskyldan fylgdist stolt með þegar þessi 21 árs gamla vonarstjarna vann risamót í fyrsta sinn. Það gekk þó ekki þrautalaust.

Nosková vann fyrstu lotu reyndar af öryggi, 6-2, og komst í 5-2 í annarri lotu en virtist hreinlega fyrirmunað að tryggja sér endanlega titilinn. Svo fór að Muchová náði að vinna lotuna, 7-5, og tryggja sér oddalotu.

Þar komst Nosková aftur í 5-2 en eflaust hefur farið um marga þegar hún tapaði svo næsta setti, áður en hún tryggði sér svo 6-3 sigur og þar með meistaratitilinn. Nosková hafði þá fengið fimm tækifæri til að skora úrslitastigið, án þess að takast það, en lét það ekki á sig fá og stóð uppi sem sigurvegari.

Nosková var í 10. sæti á síðasta heimslista en Muchová í 162. sæti. Þær þekkja hvor aðra út og inn eftir að hafa oft æft saman og að auki spilað saman, til að mynda á Ólympíuleikunum í París 2024.

Árangur þeirra undirstrikar enn stórkostlega stöðu Tékka í tennis kvenna en báðar hafa þær bent á innblásturinn sem Petra Kvitová veitti, með því að vinna Wimbledon 2011 og 2014. Marketa Vondrousova vann svo árið 2023 og Barbora Krejcikova árið 2024.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×