Sport

Djokovic ætlar ekki að sækja annan risatitil

Andri Broddason skrifar
Jannik Sinner og Novak Djokovic mætast ú undanúrslitum Wimbledon-risamótsins í tennis.
Jannik Sinner og Novak Djokovic mætast ú undanúrslitum Wimbledon-risamótsins í tennis. Samsett/Getty

Í dag fara fram undanúrslit karla á Wimbledon-risamótinu í tennis. Þar fáum við sannkallaðan risaleik þar sem Jannik Sinner og Novak Djokovic mætast.

Jannik Sinner getur varið Wimbledon-titilinn sinn með sigri á mótinu en hann mun mæta serbnesku goðsögninni Novak Djokovic. Aldur Djokovic er farinn að setja strik í reikninginn en hann er orðinn 39 ára. Þrátt fyrir það hefur hann spilað frábærlega á Wimbledon í ár.

Djokovic endaði í maraþonleik í 8-manna úrslitum þar sem hann mætti Kanadamanninum Felix Auger-Aliassime. Þetta var lengsti leikur sem Djokovic hefur spilað á Wimbledon-mótinu en þetta er í tuttugasta skipti sem hann tekur þátt.

Með sigri á mótinu getur hann bætt við 25. risatitli sínum sem myndi innsigla stöðu hans sem sigursælasti tennisleikmaður allra tíma.

Jannik Sinner sem er efstur á heimslistanum í tennis og því má Djokovic búast við erfiðum leik. Sinner átti jafna viðureign í fyrsta leik en síðan þá hefur hann ekki tapað setti og verið í toppformi.

Síðast þegar þessir leikmenn mættust var það á Opna ástralska risamótinu, einnig í undanúrslitum. Þar náði Djokovic að vinna og komst í úrslitaleikinn. Sinner vill því óðum bæta upp fyrir það tap en af ellefu viðureignum sem þeir hafa keppt í hvor á móti öðrum hefur Sinner unnið sex þeirra.

Í hinum undanúrslitaleiknum mætast heimamaðurinn Arthur Fery og Þjóðverjinn Alexander Zverev. Fery er óvænt kominn í undanúrslit og Zverev getur unnið sitt annað risamót í röð eftir að hafa unnið Opna franska risamótið fyrr í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×