Samkeppniseftirlitið hafi valið framsetningu sem vekur grunsemdir Eiður Þór Árnason skrifar 2. júlí 2026 18:26 Bjarni Benediktsson er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Vísir/Lýður Valberg Samtök atvinnulífsins og Samtök verslunar og þjónustu gera alvarlega athugasemd við vinnubrögð Samkeppniseftirlitsins (SKE) í umræðu um matvöruverslanir og olíufélög. Þá gagnrýna þau að forstjóri stofnunarinnar hafi tekið undir málflutning Félags íslenskra bifreiðaeigenda og Alþýðusambands Íslands.
Að mati samtakanna vekja tvö nýleg umræðuskjöl SKE, annars vegar um verð í matvöruverslunum og hins vegar um eldsneytismarkað, upp alvarlegar spurningar um það hvernig eftirlitið sinni lögbundnu hlutverki sínu. Í umræðuskjali SKE um olíufélögin kemur fram að álagning á dísilolíu hafi frá árinu 2022 hækkað um fimmtíu prósent að raunvirði en álagning á bensínlítrann hækkað um 25 prósent að raunvirði á sama tímabili. Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir frumniðurstöður kalla á dýpri umræðu um verðlag olíufélaganna á Íslandi. „Umræðuskjölin bera þess merki að Samkeppniseftirlitið hafi á köflum valið framsetningu sem vekur grunsemdir um háttsemi fyrirtækja áður en rannsókn er lokið. Þótt eftirlitið kalli skjölin umræðuskjöl eru þar settar fram staðhæfingar og vísbendingar sem geta haft veruleg áhrif á orðspor fyrirtækja áður en þau hafa fengið endanlegt tækifæri til að tjá sig,“ segir í yfirlýsingu SA og SVÞ. Gagnrýna samtökin að í báðum umræðuskjölunum séu settar fram sterkar ályktanir um markaðshegðun, framlegð og samkeppni „þótt eftirlitið viðurkenni sjálft að rannsóknir séu enn í gangi, frekari gögn og skýringar liggi ekki fyrir og samanburður við önnur ríki sé háður verulegum fyrirvörum.“ Eigi ekki að staðfesta fullyrðingar hagsmunaaðila SA og SVP segja það alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins hafi í fjölmiðlum lýst því yfir að efni umræðuskjalanna styðji málflutning hagsmunasamtaka á borð við FÍB og ASÍ. „Slík ummæli vekja óhjákvæmilega þá spurningu hvort ferli umræðuskjalsins sé raunverulega opið eða hvort niðurstaðan hafi í reynd verið mótuð áður en umsagnir markaðsaðila hafa verið metnar. Hlutverk sjálfstæðs samkeppnisyfirvalds er að leggja sjálfstætt og hlutlægt mat á gögn, ekki að staðfesta fyrirfram framkomnar fullyrðingar einstakra hagsmunaaðila.“ Þá segja hagsmunasamtökin að Samkeppniseftirlitið hafi í samanburði sínum við erlenda markaði ekki gert nógu vel grein fyrir öðrum mögulegum skýringum á verðþróun, á borð við smæð markaðar, launakostnað, flutningskostnað, innkaupasamninga, birgðahald eða aðra kostnaðarþætti. „Það eitt að verð á Íslandi sé hátt eða hækki hraðar en annars staðar sýnir ekki sjálfkrafa fram á að orsökin sé skortur á samkeppni. Slíkar ályktanir krefjast mun ítarlegri hagfræðilegrar greiningar en fram kemur í skjölunum.“
Mest lesið Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Viðskipti innlent Nýr 40/40 listi: Yngri stjórnendur hógværir og gamli leiðtogastíllinn að víkja Atvinnulíf Bylgjan slær enn met í hlustun Samstarf Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Viðskipti innlent Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Samstarf Fleiri fréttir Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Sjá meira