Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 30. júní 2026 06:24 Kristján Loftsson fylgist með skurði á langreyðum í Hvalfirði. Vísir/Vilhelm Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. segist ekki leggja neinn trúnað á yfirlýsingar aðgerðarsinna sem berjast gegn hvalveiðum hér á landi um að þeir vinni ekki með Paul Watson og félögum um borð í Bandero. Níu langreyðar hafa verið veiddar hingað til.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag þar sem rætt er við Kristján, sem hefur ekki svarað beiðnum Vísis um viðtal í lengri tíma. Líkt og kunnugt er er skip Paul Watson, Bandero, nú í íslenskri efnahagslögsögu og hefur Watson sagt að ætlunin sé að stöðva hvalveiðar. Varðskipið Þór hefur fylgt Bandero eftir undanfarna daga vegna þessa. Í Morgunblaðinu er haft eftir Kristjáni að áhafnir Hvals 9 og Hvals 8 hafi ekki orðið varar við ferðir Bandero. Hann gefi sjálfur lítið fyrir „anty everything-liðið“ líkt og haft er eftir honum í Mogganum. Áður hefur Valgerður Árnadóttir formaður Hvalavina sagt við fréttastofu að samtökin séu ekki samþykk aðgerðum Watson. Ofbeldisfullar aðgerðir eða aðrar sem stefni lífi fólks í voða sé ekki stutt af Hvalavinum. Ljóst er að Kristján gefur lítið fyrir þær yfirlýsingar en hann segir við Morgunblaðið að hann leggi ekki neinn trúnað á yfirlýsingar innlendra systursamtaka Paul Watson um að þau séu mótfallin fyrirhuguðum aðgerðum hans á Íslandsmiðum. Hann segir fólk hanga í hlíðinni fyrir ofan hvalstöðina í Hvalfirði og fylgjast með veiðum Hvals. Síðan séu Watson og félagar látnir vita af öllum ferðum Hvals 8 og Hvals 9.
Hvalveiðar Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Hvalir Tengdar fréttir Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Áhöfn skipsins Bandero, skip hvalveiðiverndaraktívistans Paul Watson, hefur ekki orðið við beiðnum Landhelgisgæslunnar um að gefa upp staðsetningu skipsins sem sigldi inn í efnahagslögsögu Íslands í gær. Formaður Hvalavina hefur áhyggjur af komu skipsins til landsins. 28. júní 2026 13:11 Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Varðskip Landhelgisgæslunnar fylgist enn grannt með ferðum Bandero, skips Paul Watson samtakanna. Formaður Verkalýðsfélags Akraness gagnrýnir að Landhelgisgæslan skuli ekki vísa skipinu frá. Upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir gæsluna ekki hafa lagalega heimild til þess. 29. júní 2026 21:05 „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir gæsluna undirbúna undir allar sviðsmyndir vegna veru skips aðgerðarsinnans Paul Watsons í efnahagslögsögu Íslands. Hann segir undirbúning hafa staðið yfir síðan í maí, aðgerðir snúist fyrst og fremst um að tryggja öryggi allra sjófarenda, einnig þeirra sem um borð eru í Bandero, skipi Watson. Sjálfur þrætir Watson fyrir það að aðgerðir hans setji annað fólk í hættu. 29. júní 2026 09:07 Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira
Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Áhöfn skipsins Bandero, skip hvalveiðiverndaraktívistans Paul Watson, hefur ekki orðið við beiðnum Landhelgisgæslunnar um að gefa upp staðsetningu skipsins sem sigldi inn í efnahagslögsögu Íslands í gær. Formaður Hvalavina hefur áhyggjur af komu skipsins til landsins. 28. júní 2026 13:11
Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Varðskip Landhelgisgæslunnar fylgist enn grannt með ferðum Bandero, skips Paul Watson samtakanna. Formaður Verkalýðsfélags Akraness gagnrýnir að Landhelgisgæslan skuli ekki vísa skipinu frá. Upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir gæsluna ekki hafa lagalega heimild til þess. 29. júní 2026 21:05
„Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir gæsluna undirbúna undir allar sviðsmyndir vegna veru skips aðgerðarsinnans Paul Watsons í efnahagslögsögu Íslands. Hann segir undirbúning hafa staðið yfir síðan í maí, aðgerðir snúist fyrst og fremst um að tryggja öryggi allra sjófarenda, einnig þeirra sem um borð eru í Bandero, skipi Watson. Sjálfur þrætir Watson fyrir það að aðgerðir hans setji annað fólk í hættu. 29. júní 2026 09:07