Innlent

Margrét Kristín skipuð lög­reglu­stjóri á Suður­nesjum

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Margrét Kristín Pálsdóttir hefur verið settur lögreglustjóri á Suðurnesjum frá því í maí 2025. 
Margrét Kristín Pálsdóttir hefur verið settur lögreglustjóri á Suðurnesjum frá því í maí 2025.  Ríkislögreglustjóri

Margrét Kristín Pálsdóttir hefur verið skipuð í embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum af Þorbjörgu S. Gunnlaugsdóttur. Greint var frá því í morgun að Margrét Kristín hafi verið á lista umsækjenda um starf lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu.

Greint er frá ráðningunni á vef Stjórnarráðsins. Þar er greint frá því að Margrét Kristín hafi verið skipuð aðstoðarlögreglustjóri við embættið árið 2023 og var jafnframt staðgengill lögreglustjóra. Frá því í maí 2025 hefur hún verið settur lögreglustjóri á Suðurnesjum. Margrét tekur við embættinu á miðvikudag. 

„Margrét Kristín er lögfræðingur að mennt. Frá árinu 2020 hefur hún gegnt fjölmörgum stjórnunarstörfum innan lögreglunnar, meðal annars sem settur aðstoðarríkislögreglustjóri, settur aðstoðarlögreglustjóri við embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum, yfirlögfræðingur og sviðsstjóri stjórnsýslu- og þjónustusviðs hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu“, segir í tilkynningunni. 

Greint var frá því í morgun að Margrét Kristín hafi verið ein sex umsækjenda um starf lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.

Sex hafi sótt um embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum en einn hafi dregið umsókn sína til baka. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×