Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Aron Guðmundsson skrifar 16. júní 2026 23:00 Gunnlaugur Árni Sveinsson verður fyrsti Íslendingurinn til að taka þátt á U.S. Open risamótinu í karlaflokki LSU Gunnlaugur Árni Sveinsson verður á fimmtudaginn kemur fyrsti Íslendingurinn til þess að spila á U.S. Open risamótinu í golfi í karlaflokki. Um fyrsta risamót Gunnlaugs er jafnframt að ræða og er ráshópur hans fyrir fyrstu tvo keppnisdaga mótsins klár.
Gunnlaugur hefur leik á Shinnecock Hills vellinum í Southampton í New York fylki á fimmtudaginn klukkan 18.20 á íslenskum tíma. Rástímar fyrir fyrstu tvo keppnisdaga mótsins hafa verið birtir og mun Gunnlaugur spila með Taihei Sato frá Japan og Marcelo Rozo frá Kólumbíu. Báðir tryggðu þeir sér, líkt og Gunnlaugur, sæti á mótinu í gegnum lokaúrtökumót. Þetta verður í fyrsta sinn sem Sato tekur þátt á U.S. Open en hann hefur verið fastamaður á Japan Golf Tour mótaröðinni að því er segir í frétt á vefsíðu Golfsambands Íslands. Þetta verður einnig í fyrsta sinn sem Marcelo Rozo tekur þátt á U.S. Open. Hann hefur verði atvinnumaður í golfi síðan árið 2012 og hefur leiki á PGA mótaröðinni, Korn Ferry Tour og PGA Tour Latinoamérica. Á fimmtudaginn hefja þremenningarnir eins og áður sagði leik klukkan 18.20 á íslenskum tíma á fyrsta teig Shinnecock Hills vallarins. Á föstudaginn hefja þeir sinn hring á tíunda teig klukkan 12.25 á íslenskum tíma. 156 kylfingar taka þátt á U.S. Open þetta árið, þeirra á meðal eru bestu kylfingar heims á borð við Scottie Scheffler, Rory McIlroy og Bryson DeChambeau. Efstu 60 kylfingarnir, að meðtöldum jöfnum skorum, eftir fyrstu tvo hringi mótsins komast í gegnum niðurskurð og leika á laugardegi og sunnudegi á U.S. Open. Sýnt verður beint frá U.S. Open risamótinu á Sýn Sport.
Opna bandaríska Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Fleiri fréttir Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Evrópa hafði betur gegn Bandaríkjunum Horfðu á golfmót í körfubíl Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Sjá meira