Dagbjartur og Gunnlaugur spila um sæti á risamóti Aron Guðmundsson skrifar 8. júní 2026 11:30 Dagbjartur og Gunnlaugur Árni munu standa í ströngu í dag Mynd: Golfsamband Íslands Íslensku kylfingarnir Dagbjartur Sigurbrandsson og Gunnlaugur Árni Sveinsson munu í dag hefja leik á lokaúrtökumóti fyrir Opna bandaríska meistaramótið í golfi, eitt af risamótum ársins í golfheiminum.
Greint er frá stöðunni á vefsíðu Golfsambands Íslands í dag en lokaúrtökumót dagsins fer fram á The Lakes Golf & Country Club vellinum í Westerville í Ohio í Bandaríkjunum. Um er að ræða síðustu hindrunina í átt að þátttöku á risamótinu. Það mun reyna á kylfingana sem taka þátt á mótinu því spilaðar eru 36 holur á einum og sama deginum. Alls fara fram tíu úrtökumót viðsvegar um Bandaríkin og Kanada í dag. PGA kylfingar, aðrir atvinnukylfingar og fremstu áhugakylfingar heims berjast um þátttökurétt á risamótinu og aðeins efstu kylfingar tryggja sér sæti á Opna bandaríska meistaramótinu. Á lokaúrtökumótinu sem Dagbjartur og Gunnlaugur taka þátt í eru það fjórir efstu kylfingarnir sem tryggja sér þátttökurétt á Opna bandaríska meistaramótinu. Dagbjartur vann sér inn þátttökurétt á umræddu lokaúrtökumóti með frábærri spilamennsku í Pittsfield á dögunum þar sem að hann endaði jafn í öðru sæti mótsins. Gunnlaugur Árni þurfti ekki að fara í gegnum undankeppni í átt að lokaúrtökumótinu. Góð staða hans á heimslista áhugakylfinga, þar sem að hann vermir sautjánda sætið, tryggði honum þátttökurétt á mótinu. Gunnlaugur hefur leik á lokaúrtökumótinu klukkan 12:12 að íslenskum tíma í dag og Dagbjartur nokkrum mínútum seinna, eða klukkan 12:36. Hægt er að fylgjast með framvindu mála á mótinu hér.
Opna bandaríska Golf Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira