„Töluvert öðruvísi golf sem er spilað núna“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 16. júní 2026 12:32 Gunnlaugur Árni er mættur á Opna bandaríska. Tanner Pearson/NCAA Photos via Getty Images Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur fengið góðan undirbúning fyrir Opna bandaríska meistaramótið en segist vera að labba inn í öðruvísi aðstæður en hann er vanur.
Gunnlaugur mætti til New York á laugardag og tók æfingahring á Shinnecock Hills vellinum, með Bryson DeChambeau og Patrick Reed, á sunnudag. „Það hefur bara gengið mjög vel,“ sagði Gunnlaugur um undirbúninginn á blaðamannafundi í gær. Viðtalið við Gunnlaug (á íslensku) og myndefni af æfingu gærdagsins má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. „Ég mætti nokkuð snemma, flaug inn á laugardegi. Það er enginn annar staður sem ég væri frekar til í að vera á heldur en hér. Umgjörðin er frábær og ég er mjög spenntur fyrir komandi viku. Ég er með gott teymi með mér sem hjálpar mér að undirbúa mig. Ég er að kynnast aðstæðum og gera allt klárt fyrir komandi viku. Allt hefur gengið vel og enn tveir dagar til stefnu, ég reyni að vera tilbúinn þegar að því kemur,“ bætti Gunnlaugur við. Gunnlaugur tryggði sig inn á mótið í gegnum undankeppni, sem kallast „Golf‘s Longest Day“ í Bandaríkjunum, en þar kepptu þúsundir kylfinga um örfá sæti á mótinu. Hann segir leik sinn á góðum stað þessa stundina en býst við öðruvísi golfi en í undankeppninni. „Leikurinn minn er bara í mjög fínu standi, hann hlýtur að vera það eftir að hafa komist í gegnum undankeppnina. Þetta er samt töluvert öðruvísi golf sem er spilað núna. Þetta er meira strandvallargolf, þar sem er mikill vindur og opið svæði með þykkum karga. Aðalatriðið fyrir mig er að undirbúa mig eins vel og ég get, svo reyni ég bara að spila besta golfið.“ Gunnlaugur verður fyrsti Íslendingurinn til að keppa á Opna bandaríska meistaramótinu í karlaflokki. Hann vonast til að verða sá fyrsti af mörgum. „Það er gríðarlegt stolt sem fylgir því, að vera frá Íslandi og eiga þennan heiður að vera fyrsti Íslendingurinn á þessu móti. Vonandi sá fyrsti af mörgum. Það er rosalegur fjöldi af góðum kylfingum á Íslandi og við erum mjög nálægt því, kannski nær því en við höldum, en það þarf að taka góðar ákvarðanir og komast á réttu staðina. Ég er mjög þakklátur að hafa komist til LSU, það hefur hjálpað mér mikið. Ég er mjög stoltur og finnst ótrúlega gaman að vera frá minni þjóð, maður finnur fyrir miklum stuðningi þegar það gengur vel.“ Viðtalið við Gunnlaug (á íslensku) og myndefni af æfingu gærdagsins má sjá í spilaranum ofar í fréttinni.
Golf Opna bandaríska Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira