Ragnhildur og Aron Snær unnu Korpubikarinn Aron Guðmundsson skrifar 31. maí 2026 20:03 Aron Snær og Ragnhildur sýndu flotta takta um helgina Mynd: Golfsamband Íslands Ragnhildur Kristinsdóttir og Aron Snær Júlíusson stóðu uppi sem sigurvegarar í Korpubikarnum á GSÍ mótaröðinni í golfi í dag.
Um annað mótið á GSÍ mótaröðinni var að ræða en þessa helgina var spilað á Korpúlfsstaðavelli Golfklúbbs Reykjavíkur við frábærar aðstæður. Aron Snær kom inn í mót helgarinnar eftir að hafa sigrað fyrsta mótið í mótaröðinni í karlaflokki en hann þurfti að hafa fyrir sigrinum í Korpubikarnum þar sem baráttan milli hans og Arons Emils Gunnarssonar úr Golfklúbbi Selfoss var hörð á lokahringnum Svo fór að Aron Snær hafði betur og lék á alls tíu höggum undir pari á mótinu. Hans annar sigur í röð í tveimur mótum til þessa á GSÍ mótaröðinni. Fullkomin byrjun hjá kappanum. Aron Emil skilaði sér í hús á mótinu á átta höggum undir pari. Í kvennaflokki var það Ragnhildur Kristinsdóttir sem stóð uppi sem sigurvegari eftir frábæran lokahring sem hún fór á 66 höggum. Ragnhildur endaði mótið á sex höggum undir pari, fimm höggum á undan næsta kylfingi sem var Perla Sól Sigurbrandsdóttir sem hafði unnið fyrsta mót mótaraðarinnar þetta árið.
Golf Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira