Gunnlaugur æfði óvænt með DeChambeau og Reed Ágúst Orri Arnarson skrifar 15. júní 2026 11:29 Vel fór á með æfingafélögunum. instagram / @jakeamos Gunnlaugur Árni Sveinsson fær frábæran undirbúning fyrir Opna bandaríska meistaramótið í golfi. Fyrir æfingahringinn með besta kylfingi heims fékk hann óvænt að æfa með Bryson DeChambeu og Patrick Reed.
Gunnlaugur tók æfingahring með DeChambeau og Reed í gær á Shinnecock Hills golfvellinum, þar sem Opna bandaríska fer fram frá fimmtudegi til sunnudags. DeChambeau og Reed voru tvær af stærstu LIV-mótaraðarinnar og hafa báðir unnið risamót. Reed vann Masters árið 2018 og DeChambeau vann Opna bandaríska tvisvar, 2020 og 2024. Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands, sagði frá hringnum í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hún sagði jákvætt að Gunnlaugur geti hrist af sér stressið fyrir komandi risamót með stærstu nöfnum golfsins. „Fólk var búið að tala um að hann yrði með Scottie Scheffler, af því þeir eru með sömu umboðsskrifstofu og umboðsskrifstofan hugsar auðvitað: Hvernig getum við hámarkað virði þessa unga kylfings? Auðvitað skellum við honum út á völl með Scottie og þessum og hinum. En svo kom þetta óvænt inn í gær, hann var að spila með [Bryson] DeChambeau og Patrick Reed. Þetta er rosalega gott, út frá því sjónarmiði að hann hristir af sér skjálftann, sviðsskrekkinn og stressið. Þetta eru stærstu nöfnin, þeir hafa verið á LIV-mótaröðinni, Ryder bikarnum og öllum stærstu sviðunum,“ sagði Hulda. Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni ásamt Huldu Bjarnadóttir, forseta Golfsambands Íslands. Þær ræddu meðal annars Opna bandaríska og þátttöku Gunnlaugs þar, Regluvörðinn og almennt um golf. Viðtalið má heyra í spilaranum að ofan. Opna bandaríska meistaramótið verður í beinni útsendingu á Sýn Sport fimmtudag til sunnudags.
Golf Opna bandaríska Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira