Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Kjartan Kjartansson skrifar 12. júní 2026 07:03 Evrópusambandsríki þarf að standast fimm svonefnd Maastricht-skilyrði til þess að geta tekið upp evru. Farið yfir yfir hversu vel Ísland hefur staðiðst þau skilyrði í nýrri skýrslu sem Félag atvinnurekenda og Íslensk-evrópska verslunarráðið létu taka saman. Vísir/Getty Efnahagsmál á Íslandi hafa aldrei uppfyllt öll þau skilyrði sem sett eru fyrir upptöku evru. Besti árangurinn var þó jafnaður í fyrra þegar Ísland uppfyllti þrjú af fimm skilyrðum en staðan hefur versnað síðan þá.
Maastricht-skilyrðin svonefndu eru þær kröfur sem gerðar eru til ríkja sem eru forsenda þess að þau geti tekið upp evru sem gjaldmiðil. Á meðal þeirra er að verðbólga, vaxtamunur, stöðugleiki í gengismálum og staða hins opinbera megi ekki fara út fyrir ákveðin viðmið. Ísland hefur mest uppfyllt þrjú af þessum fimm skilyrðum á nokkru ári síðasta aldarfjórðunginn samkvæmt greiningu í skýrslu um ESB og rekstrarumhverfi fyrirtækja sem hugveitan Evrópustraumar tók saman fyrir Félag atvinnurekenda og Íslensk-evrópska verslunarráðið. Sá árangur náðist í fyrra þegar afkoma ríkissjóðs, skuldastaða hans og gengisstöðugleiki voru innan viðmiða Maastricht-skilyrðanna. Síðast uppfyllti Ísland þrjú skilyrðanna, árið 2022 en þá var verðbólga og vaxtamunur innan marka en skuldir og afkoma ríkissjóðs ekki. Á árinu 2026 hefur þróun vaxta og verðbólgu versnað gagnvart Maastricht-skilyrðunum. Flest áranna frá 2001 til 2025 hefur Ísland staðist skilyrði um gengisstöðugleika og afkomu ríkissjóðs. Á hinum enda rófsins var það aðeins árið 2022 sem vaxtamunur var innan marka. Þá hafa skuldir ríkissjóðs aðeins verið innan marka skilyrðanna árið 2024 og 2025 í verðbólga í fjórgang; 2005, 2017, 2018 og 2022. Hagstjórnin áfram í innlendum höndum Ísland þyrfti ekki að standast Maastricht-skilyrðin lengur en til þess að fá að taka upp evru. Þannig uppfylla fá núverandi evruríki öll skilyrðin, að því er kemur fram í skýrslunni. Nokkur ár gæti tekið fyrir Ísland að taka upp evru jafnvel þegar og ef það gengi í Evrópusambandið og myntsamstarfið. Allt frá þremur til nítján árum hafa liðið frá því að ný aðildarríki ganga í sambandið þar til þau taka upp evru. Rök um að upptaka evru væri frekar gagnlegt tæki til þess að tryggja verðstöðugleika til lengri tíma en til að leysa núverandi verðbólguvandræði eru rakin í skýrslunni. Aðgerðir til þess að ná tökum og vöxtum og verðbólgu yrðu í reynd þær sömu og til þess að standast skilyrði þess að taka upp evru. Hallgrímur Oddsson, höfundur skýrslunnar, bendir á að yfirlýst markmið um inngöngu í myntbandalagið og aðlögun krónu að evru með stuðningi Seðlabanka Evrópu gæti lækkað verðbólguvæntingar. Hallgrímur Oddsson stýrir hugveitunni Evrópustraumum. Hann var áður blaðamaður á Kjarnanum.Vísir „Helstu aðgerðir til að ná markmiðum yrðu eftir sem áður ávallt í höndum Íslendinga,“ skrifar hann í skýrslunni og vísar meðal annars til kjarasamninga, ákvarðana um opinber gjöld og skuldir og stýrivexti. Peningamál ein og sér dugi þó ekki til þess að tryggja stöðugleika verðlags, vinnumarkaðar né skuldastöðu hins opinbera. Verðbólga er þannig sögð hafa verið há í sumum evruríkjum en ekki eins þrálát og á Íslandi. Raunvaxtastig hafi heldur ekki verið nærri því eins hátt þar og á Íslandi. „Velta má fyrir sér hvort Ísland hefði á síðustu áratugum getað búið við jafn miklar launahækkanir og raun ber vitni með evru sem sinn gjaldmiðil. Afleiðingar hás launastigs yrðu ekki í sama mæli á verðbólgu og nú þegar við búum við krónuna, heldur á atvinnustig.“ Óvíst hversu hratt og hve mikið vextir lækkuðu Einnig er farið yfir möguleg áhrif upptöku evru á vaxtaumhverfi á Íslandi og möguleg áhrif inngöngu í Evrópusambandið á eignaverð. Sérfræðingar íslenskra fjármálastofnana eru sagðir sammála um að vaxtaumhverfi á Íslandi breytti með upptöku evru. Lánavextir miðuðu þá við evruvexti og lán yrðu fjármögnuð af innlánum bankanna í evrum og sértryggðum skuldabréfum í evrum. Vaxtastig er hærra á Íslandi en á evrusvæðinu. Í skýrslunni segir að frá 2015-2025 hafi vextir á lán til fyrirtækja verið þremur til sex prósentustigum hærri hér en á evrusvæðinu.Stöð 2/Sigurjón Bent er á að vextir á fyrirtækjalánum séu hvergi nærri tveggja stafa tölu í löndum ESB ólíkt því sem gerðist á Íslandi í mars. „Lánakjör myndu þó áfram einnig ráðast af innlendum þáttum, t.d. kröfum um eiginfjárbindingar og sértækum bankasköttum,“ segir í skýrslunni. Erfitt er sagt að meta nákvæmlega hversu hratt og mikið fjármögnunarkostnaður lækkaði með evru sem gjaldmiðil. „Afnám gengisáhættu í viðskiptum við evrusvæðið, lægri kostnaður fyrirtækja við varnir gegn gengissveiflum, möguleg aukin samkeppni erlendra banka og fleira myndi hafa áhrif. Þá eru ótalin áhrif af því álagi sem fjárfestar myndu leggja á íslenskt efnahagskerfi,“ segir þar. Hækkanir á eignaverði óumflýjanlegar Óumflýjanlegar hækkanir yrðu á fasteigna- og verðbréfamarkaði samfara lægra vaxtastigi við það að Íslendi gengi í Evrópusambandið samkvæmt skýrslunni. „Möguleg aukin eftirspurn erlendra aðila eftir innlendum eignum, hvort sem er á fasteigna-, hluta- eða skuldabréfamarkaði, myndi einnig hafa áhrif á verðmyndun.“ Reikna má með að fasteignaverð hækki ef Ísland tekur upp evru og vextir lækka.Vísir/Vilhelm ESB-aðild er sögð auka aðgengi erlendra fjárfesta að íslenskum eignamarköðum og með upptöku evru yrði gengisáhættu eytt. Því megi gera ráð fyrir að kaupendum fjölgi á eftirspurnarhlið íslenskra eignamarkaða. Þó að erlendum fjárfestum innan EES-svæðisins sé nú þegar heimilt að fjárfesta á Íslandi eru séríslenskar reglur sem takmarka eignarhald útlendinga í sjávarútvegsfélögum. Skýrsluhöfundur segir ólíklegt að slíkar takmarkanir gildi áfram gangi Ísland í ESB. Til þess þyrfti sérstakar undanþágur eða sérreglur við inngöngu.
Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Efnahagsmál Íslenska krónan Fasteignamarkaður EES-samningurinn Atvinnurekendur Mest lesið Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Kaldvík fær enn frekari frest Viðskipti innlent 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Neytendur Fleiri fréttir Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Sjá meira