Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Bjarki Sigurðsson skrifar 8. júní 2026 22:03 Þau voru öll kjörin á þing en eru nú hætt. Vísir/Samsett Sex þingmenn hafa yfirgefið þingheim fyrstu átján mánuði kjörtímabilsins vegna hneykslismála eða til að taka við öðrum störfum. Þingmenn hafa þegið milljónir í biðlaun eftir afsagnir.
Þann 30. nóvember 2024 voru 63 þingmenn kjörnir inn á Alþingi. Þórður Snær Júlíusson tilkynnti í kosningabaráttunni að hann hygðist ekki taka sæti eftir uppljóstrun um ósmekkleg skrif á bloggsíðu sinni. Svo, einungis mánuði eftir að hafa leitt Sjálfstæðisflokkinn til sögulega slæmra kosninga, þar sem flokkurinn fékk í fyrsta sinn undir tuttugu prósent atkvæða, tilkynnti Bjarni Benediktsson að hann ætlaði ekki að taka sæti á þingi og að hann myndi hætta sem formaður flokksins. Sendiherra og bæjarstjóri Í janúar 2026 sagði Guðbrandur Einarsson af sér vegna tilraunar til vændiskaupa árið 2012 og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir hætti á þingi í apríl til að taka við stöðu sendiherra í London. Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins tilkynntu svo um afsagnir sínar í júní, þau Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Vilhjálmur Árnason. Því hafa sex þeirra sem fyrir átján mánuðum gáfu kost á sér til Alþingis til fjögurra ára horfið á braut, tveir stjórnarþingmenn vegna hneykslismála og fjórir sjálfstæðismenn til að starfa annars staðar. Misjafnt með biðlaun Þórður átti rétt á þriggja mánaða biðlaunum en afsalaði sér þeim. Hann fékk þó þingfararkaup fyrir rúma tvo mánuði þar sem hann gat ekki sagt af sér fyrr en þing var sett í febrúar. Guðbrandur þáði biðlaun í þrjá mánuði upp á 4,8 milljónir króna. Áslaug Arna á rétt á biðlaunum í allt að sex mánuði og gæti heildarupphæðin numið tæpum tíu milljónum, svo lengi sem hún tekur ekki við öðru starfi í millitíðinni. Vilhjálmur Árnason mun hins vegar ekki eiga rétt á biðlaunum þar sem nýtt starf hans sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar skilar honum hærra kaupi en þingmannskaupi. Í fréttinni í spilaranum kemur fram að Guðbrandur eigi rétt á biðlaunum í sex mánuði. Það er ekki rétt. Hann þáði biðlaun í febrúar, mars og apríl og á ekki rétt á frekari launum. Í þessari grein kom einnig fram að hann ætti þrjá mánuði eftir á biðlaunum en það hefur verið uppfært. Ráðherrabiðlaun eru annar dálkur Á vef Alþingis hafa ekki verið birtar launatölur fyrir maímánuð og óvíst er hvort Þórdís Kolbrún þiggi biðlaun áður en hún tekur við sem sendiherra 1. ágúst. Bjarni Benediktsson þáði biðlaun frá júní til ágúst 2025. Hann átti rétt á sex mánaða launum en ætla má að hann hafi verið á ráðherrabiðlaunum þar á undan. Þau laun eru greidd af forsætisráðuneytinu. Sex þingmenn hafa sagt af sér á fyrstu átján mánuðum þingsins. Vísir/Hjalti Fréttastofa hefur sent fyrirspurn á ráðuneytið og óskað eftir upplýsingum um biðlaunagreiðslur til fyrrverandi ráðherra og von er á svörum á næstunni.
Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn Viðreisn Samfylkingin Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mál Guðbrands Einarssonar Mest lesið Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Innlent Vill breyta lögum um .is Innlent „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Erlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Erlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Innlent Fleiri fréttir Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Sjá meira