Bannar ráðuneytinu að stofna skaðabótasjóðinn Samúel Karl Ólason skrifar 29. maí 2026 16:58 Innan dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna er ekki búið að opinbera hvaða fimm menn eiga að stýra skaðabótasjóðnum svokallaða. AP/Andrew Harnik Bandarískur dómari meinaði í dag ríkisstjórn Donalds Trump að stofna og greiða peninga úr skaðabótasjóði. Bannið er tímabundið á meðan dómstólar eiga að segja til um lögmæti sjóðsins umdeilda. Umræddur sjóður inniheldur 1.776 milljónir dala eða um tvö hundruð milljarða króna og á honum að vera ætlað að greiða skaðabætur til fólks sem telur sig fórnarlömb vopnvæðingar réttarkerfis Bandaríkjanna skaðabætur.
Sjóðurinn var stofnaður í tengslum við samkomulag sem dómsmálaráðuneytið, undir stjórn Todd Blanche, fyrrverandi einkalögmanns Trumps, gerði við forsetann sjálfan vegna lögsóknar hans gegn Skattinum. Hann höfðaði mál gegn Skattinum vegna þess að skattaskýrslum hans var lekið til fjölmiðla en hann hefur um árabil neitað að birta þær, eins og forsetaframbjóðendur gera vestanhafs. Blanche hefur neitað að útiloka í gær að fólk sem hefði gerst sekt um að beita lögregluþjóna ofbeldi myndi fá greitt úr sjóðnum. Frá því sjóðurinn var tilkynntur hefur hann verið gagnrýndur harðlega en þessu samkomulagi fylgdi einnig afsökunarbeiðni til Trumps og fjölskyldu hans. Blanche bætti svo óvænt ákvæði við samkomulagið um að Skattinum væri bannað að rannsaka Trump, syni hans, fyrirtæki og tengda aðila vegna gamalla skattgreiðslna. Trump mun lengi hafa verið til rannsóknar hjá Skattinum vegna gruns um að hann hafi vangreitt skatta um árabil. Sjá einnig: Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu New York Times hefur fjallað um það að Trump gæti skuldað allt að hundrað milljónir dala í vangreidda skatta, sem hann mun komast hjá því að greiða vegna samkomulagsins. Hafa ekki enn myndað nefndina Dómsmálaráðuneytið hefur ekki enn myndað fimm manna nefndina sem á að vinna úr skaðabótakröfum og ákveða hverjir fá bætur og hverjir ekki. Samkvæmt samkomulaginu á Trump að hafa vald til að reka menn úr nefndinni og skipa nýja í staðinn. Nokkrir hópar og einstaklingar hafa höfðað mál gegn ríkisstjórninni vegna sjóðsins. Þess vegna ákvað dómarinn í dag að setja tímabundið bann á sjóðinn. Bannið á að gilda í minnst tvær vikur, samkvæmt AP fréttaveitunnar. Sjá einnig: Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Andstæðingar Trumps hafa gagnrýnt ætlanir ráðuneytisins um sjóðinn harðlega og segja hann vilja nota hann til að gefa bandamönnum sínum opinbert fé. Sjóðurinn þykir ekki líklegur til að nýtast Repúblikönum í þingkosningunum í haust og hafa þingmenn flokksins verið meðal þeirra sem hafa gagnrýnt samkomulagið sem ráðuneytið gerði við Trump.
Bandaríkin Donald Trump Árás á bandaríska þinghúsið Þingkosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira