Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Lovísa Arnardóttir skrifar 28. maí 2026 08:29 Myndin er tekin á heilsugæslu í Andar í Afganistan í fyrra þar sem konur bíða þess að hitta heilbrigðisstarfsfólk. Vísir/Getty Talíbanar hafa með nýrri tilskipun, nr.18, sett fram ný skilyrði fyrir hjónaskilnaði þar sem engan lágmarksaldur er að finna fyrir hjónaband. Þar má hins vegar finna leiðbeiningar um hvernig megi ógilda barnahjónaband. UN Women hefur miklar áhyggjur af fjölgun barnahjónabanda í kjölfar innleiðingar tilskipunarinnar.
Barnahjónabönd voru gerð refsiverð fyrir valdatöku Talíbana fyrir um fimm árum og settur lágmarksaldur fyrir hjónaband. UN Women segir í tilkynningu um málið að ný tilskipun, nr. 18, sé enn ein aðförin að rétti og öryggi afganskra kvenna og barna. Í tilkynningu frá samtökunum segir að ný tilskipun, sem gefin var út af ríkjandi stjórnvöldum þann 14. maí 2026, setji fram ný skilyrði fyrir skilnaði og veki alvarlegar áhyggjur af barnahjónaböndum og samþykki kvenna. Tilskipunin marki breytingu frá lögum sem voru í gildi fyrir valdatöku Talíbana fyrir nær fimm árum þar sem tilgreindur var lágmarksaldur fyrir hjónaband og nauðungar- og barnahjónabönd gerð refsiverð. Í nýrri tilskipun sé engan lágmarksaldur fyrir hjónaband að finna heldur megi finna leiðbeiningar um það hvernig sé hægt að ógilda barnahjónaband eða hvernig barn sem var neytt í hjónaband getur farið fram á ógildingu eftir að það hefur náð kynþroska. Enn erfiðara að skilja við maka Í tilkynningu frá UN Women um tilskipunina segir að með því að gefa í skyn að barnahjónabönd séu leyfileg sé hætta á að slík hjónabönd verði talin eðlileg. „Tilskipunin gerir konum einnig erfiðara fyrir að skilja við maka sinn,“ segir í tilkynningu frá Un Women um málið. Þar kemur einnig fram að konur standi frammi fyrir flóknari lagalegum hindrunum en karlar vilji þær sækja um skilnað. Þær þurfi, til dæmis, marga vitnisburði til að styðja beiðni sína um skilnað. Í sumum tilfellum geti eiginmaður hnekkt skilnaðarkröfu eiginkonu sinnar með yfirlýsingu eða með því að neita samþykki. „Þetta undirstrikar enn og aftur að karlar og konur eru ekki lengur jöfn fyrir lögum í Afganistan, eins og staðfest var með nýlegri tilskipun nr. 12, sem gefin var út í janúar,“ segir í tilkynningu UN Women. Stella segir ástandið skelfilegt. Vísir/Lýður Valberg Sviptar grundvallarmannréttindum „Næstum fimm ár eru liðin frá valdatöku talíbana í Afganistan og á þeim tíma hafa afganskar konur og stúlkur verið sviptar grundvallarmannréttindum sínum og reisn. Þessar takmarkanir á lífi og frelsi afganskra kvenna eru ekki tímabundnar, líkt og stundum hefur verið haldið fram; engin þessara skipana hefur verið afturkölluð,“ segir Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women. Hún segir afleiðingarnar skelfilegar. „Lífslíkur kvenna hafa dalað og þær lifa lengur við slæma heilsu. Líkur á mæðradauða og barnahjónaböndum hafa aukist og ofbeldi gegn konum fer vaxandi. Það er mikilvægt að ein versta aðför að réttindum kvenna í heiminum verði ekki normalíseruð. Alþjóðasamfélagið verður að bregðast við strax, ekki aðeins svo hægt sé að mæta þörfum afganskra kvenna, heldur þarf að standa með afgönskum konum og stúlkum svo hægt sé að byggja upp framtíð þar sem þær geta látið ljós sitt skína,” segir Stella. Hún bendir á að Ísland hafi verið eitt af þeim ríkjum sem hafa sýnt afgönskum konum og stúlkum samstöðu í verki. „Til að mynda kallaði Ísland, í samstarfi við Suður-Afríku og Chile, eftir því að stofnuð yrði óháð rannsóknarnefnd um stöðu mannréttinda í Afganistan. Það var eitt af þeim málum sem Ísland hefur beitt sér fyrir með setu sinni í mannréttindaráðinu. Stjórnvöld hafa einnig stutt dyggilega við mikilvægt starf UN Women í Afganistan síðastliðin ár, sem hefur aldrei verið jafn mikilvægt og núna.“ Skora á Talíbana Samtökin segjast hafa miklar áhyggjur af mögulegum afleiðingum nýju tilskipunarinnar, nr. 18. „Afganskar konur og stúlkur eiga rétt á að lifa lausar við ofbeldi og mismunun. Þær eiga rétt á virðingu, öryggi, ferðafrelsi og þátttöku í opinberu lífi. Lagarammi verður að tryggja jafnræði fyrir lögum, vernda konur gegn hvers kyns ofbeldi og tryggja raunverulegan aðgang að réttarkerfinu án mismununar,“ segir í tilkynningunni. Samtökin skora að lokum á Talíbana að tryggja að öll lög og stefnur verndi réttindi kvenna og stúlkna í samræmi við mannréttindasáttmála og samninga sem Afganistan er aðili að.
Afganistan Tengdar fréttir Refsivert að ganga í hjónaband með barni í Síerra Leóne Barnahjónabönd voru nýlega gerð refsiverð í Sierra Leone. Markar þetta mikil tímamót þar sem í landinu er ein hæsta tíðni barnahjónabanda í heiminum. Fjörutíu prósent stúlkna undir átján ára aldri hafa verið neyddar í hjónaband í landinu. 25. júní 2024 18:04 „Hún hefði dáið, ef ekki væri fyrir nýju fæðingardeildina“ Alþjóðlegur dagur kvenna – International Women´s Day – er haldinn í dag og sjónum meðal annars beint að þeim margvíslegu áskorunum sem konur og stúlkur um allan heim standa frammi fyrir á hverjum degi. 8. mars 2022 12:45 UNICEF: Hrollvekjandi fréttir af fjölgun barnahjónabanda í Afganistan Fjölskyldur í neyð bjóða stúlkubörn allt niður í 20 daga gömul í skiptum fyrir heimanmund. 16. nóvember 2021 12:01 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Sjá meira
Refsivert að ganga í hjónaband með barni í Síerra Leóne Barnahjónabönd voru nýlega gerð refsiverð í Sierra Leone. Markar þetta mikil tímamót þar sem í landinu er ein hæsta tíðni barnahjónabanda í heiminum. Fjörutíu prósent stúlkna undir átján ára aldri hafa verið neyddar í hjónaband í landinu. 25. júní 2024 18:04
„Hún hefði dáið, ef ekki væri fyrir nýju fæðingardeildina“ Alþjóðlegur dagur kvenna – International Women´s Day – er haldinn í dag og sjónum meðal annars beint að þeim margvíslegu áskorunum sem konur og stúlkur um allan heim standa frammi fyrir á hverjum degi. 8. mars 2022 12:45
UNICEF: Hrollvekjandi fréttir af fjölgun barnahjónabanda í Afganistan Fjölskyldur í neyð bjóða stúlkubörn allt niður í 20 daga gömul í skiptum fyrir heimanmund. 16. nóvember 2021 12:01