Innlent

Hildur Björns­dóttir nýr borgar­stjóri

Árni Sæberg skrifar
Hildur kynnti nýjan borgarstjórnarmeirihluta í Viðey.
Hildur kynnti nýjan borgarstjórnarmeirihluta í Viðey. Vísir/Vilhelm

Hildur Björnsdóttir verður nýr borgarstjóri Reykjavíkurborgar. Einar Þorsteinsson verður formaður borgarráðs og Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar en þau munu skiptast á hlutverkum þann 1. júní 2027.

Þetta er meðal þess sem kom fram á blaðamannafundir þeirra þriggja í Viðey í morgun. Lesa má um allt sem þar kom fram í fréttinni hér að neðan:

Hildur hefur setið í borgarstjórn Reykjavíkur frá árinu 2018 og verið oddviti flokksins síðastliðin fjögur ár. Hún er 39 ára, lögfræðingur og stjórnmálafræðingur að mennt. Hún tekur formlega við völdum sem 24. borgarstjóri Reykjavíkur þann 2. júní næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×