Sveitarstjórnarkosningar 2026

Fréttamynd

Matthías leiðir Fram­sókn í Ár­borg

Matthías Bjarnason, tæknimaður og varabæjarfulltrúi, leiðir lista Framsóknar í Árborg fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar 2026.  Ellý Tómasdóttir, bæjarfulltrúi, verkefnastjóri og forvarnarfulltrúi, skipar annað sætið.

Innlent
Fréttamynd

Stofna fram­boð fyrir þá sem leggjast gegn sam­einingu

Framboðslistinn Framtíð Árneshrepps mun bjóða fram í hreppnum í komandi sveitarstjórnarkosningum en framboðið vill höfða til þeirra sem eru mótfallnir mögulegri sameiningu við Kaldrananeshrepp. Íbúar kjósa um sameininguna í mars en sveitarstjórnarkosningar eru í maí.

Innlent
Fréttamynd

Miðflokkur kynnir sex efstu í Garða­bæ

Efstu sex sæti Miðflokksins í Garðabæ hafa verið staðfest af stjórn kjördæmafélags Suðvesturkjördæmis. Lárus Guðmundsson, fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu, verður áfram oddviti flokksins.

Innlent
Fréttamynd

Gísli Marteinn rís upp í krafti sýkla­lyfja

„Það styttist samt í upp­risu,“ segir Gísli Marteinn Baldurs­son sem, með hjálp sýkla­lyfja, er að hrista af sér flensu og lungna­bólgu sem hafa í sam­einingu haldið honum í tvær vikur fjarri góðu sjón­varps­gamni í spjallþættinum sem við hann er kenndur á Rúv.

Lífið
Fréttamynd

„Allt lýð­ræðið þurrkað út“

Djúpur ágreiningur hefur verið innan borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins allt kjörtímabilið og er hann meðal ástæðna þess að tveir borgarfulltrúar hafa sagt skilið við flokkinn. Þeir ætla að stofna nýjan óháðan borgarstjórnarflokk.

Innlent
Fréttamynd

Sakar minni­hluta um ó­dýra pólitík í að­draganda kosninga

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri í Kópavogi segir það alrangt að bæjarstjórn hafi samþykkt að greiða 1,5 milljarð í leigu fyrir Vetrargarðinn í Smáralind þar sem áætlað sé að opna nýja menningarmiðstöð og bókasafn. Ásdís segir leigusamninginn trúnaðarmál en 1,5 milljarða kostnaður taki til rekstrar- og launakostnaðar til næstu tíu ára.

Innlent
Fréttamynd

Brynja Dan í ó­vissu um oddvitasætið í Garða­bæ

Það stefnir í talsverða spennu hjá Framsóknarflokknum í Garðabæ á laugardag þegar uppstillingarnefnd kynnir lista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Eins og staðan er í dag er vitað til þess að tveir hafi boðið sig fram sem oddvita flokksins, Brynja Dan Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi flokksins í Garðabæ, og Hlynur Bæringsson varamaður hennar.

Innlent
Fréttamynd

Ó­ljóst hvað verður um Kjartan og Mörtu

Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni gefur lítið fyrir þær skýringar Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur borgarfulltrúa, sem kynntu að þau hefðu bæði gengið til liðs við Miðflokkinn, að ágreiningur hafi verið um borgarlínuna. Hildur segir það augljósan fyrirslátt sem dæmir sig sjálfur.

Innlent
Fréttamynd

Odd­vitinn lætur gott heita í Mos­fells­bæ

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar var samþykktur samhljóða á félagsfundi síðdegis. Nýr oddviti flokksins í bænum er Ólafur Ingi Óskarsson, netkerfisfræðingur og varabæjarfulltrúi.

Innlent
Fréttamynd

Þau verða í efstu tíu sætunum á lista Pírata

Allir tíu frambjóðendurnir í prófkjöri Pírata um helgina hafa þegið það sæti á lista flokksins í Reykjavík sem kom upp úr kjörkassanum. Flokkurinn kynnir fullskipaðan framboðslista í Reykjavík á næstu vikum. 

Innlent
Fréttamynd

Ætlar ekki að taka úr­slitunum sem höfnun

Alexandra Briem, oddviti Pírata í Reykjavík, telur flokkinn ekki hafa hafnað sér eftir að hafa lotið í lægra haldi í oddvitaprófkjöri Pírata fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Hún ætlar að þiggja annað sætið.

Innlent
Fréttamynd

Sunna Hlín leiðir lista Fram­sóknar á­fram

Sunna Hlín Jóhannsdóttir skipar efsta sæti lista Framsóknarflokksins á Akureyri. Hún er þegar sitjandi bæjarfulltrúi fyrir hönd flokksins og sömuleiðis Gunnar Már Gunnarsson, sem skipar annað sæti listans.

Innlent
Fréttamynd

Þær skipa efstu sæti lista Vor til vinstri

Sanna Magdalena Mörtudóttir skipar fyrsta sæti lista Vors til vinstri í Reykjavík og þar með efsta sæti sameiginlegs lista þeirra með Vinstri grænum sem ber heitið Vinstrið. Með henni á lista eru Ásta Þórdís Skjalddal og Arna Magnea Danks.

Innlent
Fréttamynd

„Ég tel þetta ekki vera á­kveðna höfnun á Alexöndru“

Efstu tíu sæti lista Pírata í Reykjavík verða staðfest í dag og listinn kynntur eftir helgi. Prófkjöri lauk í gær. Kristinn Jón Ólafsson, nýr oddviti flokksins, segir spennandi tíma framundan. Ekki liggur fyrir hvort Alexandra Briem þiggi eða hafni öðru sæti listans en Kristinn segir að þó svo að niðurstaða sé bindandi geti fólk beðið um að vera fært neðar eða hafnað sæti.

Innlent
Fréttamynd

Kjartan og Marta til liðs við Mið­flokkinn

Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúar hafa ákveðið að segja skilið við Sjálfstæðisflokkinn og ganga til liðs við Miðflokkinn. Þau segjast telja Miðflokkinn mun líklegri til að vinna að meginmarkmiðum þeirra í borgarmálum.

Innlent
Fréttamynd

Bjarki lætur staðar numið í Dalabyggð

Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri Dalabyggðar hefur ákveðið að sækjast ekki eftir endurráðningu og mun láta af störfum þegar samningur hans rennur út eftir sveitarstjórnarkosningar. Hann segist tilkynna ákvörðunina tímanlega svo frambjóðendur til sveitarstjórnar viti að staðan verði laus að kosningum loknum. Hann nefnir enga sérstaka ástæðu fyrir kaflaskilunum og útilokar ekki störf á sama vettvangi annars staðar.

Innlent
Fréttamynd

Miðflokkskonur gera sig klárar í bátana

Kosningastjóri Miðflokksins í Reykjavík, Nadine Guðrún Yagi, er kát með mikinn kvennafögnuð sem flokkurinn blés til gær en víst er að fólk er farið að brýna kutana – kosningabaráttan fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar er að hefjast.

Lífið
Fréttamynd

Þessi leiða Við­reisn í Garða­bæ

Guðlaugur Kristmundsson bæjarfluttrúi, Harpa Þorsteinsdóttir varabæjarfulltrúi, Jón Bjarni Steinsson lögfræðingur, skipa efstu þrjú sætin á lista Viðreisnar í Garðabæ í komandi sveitarstjórnarkosningum. 

Innlent
Fréttamynd

Þau skipa lista Við­reisnar í Reykja­vík

Róbert Ragnarsson, fyrrverandi Bæjarstjóri Grindavíkur, og leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson skipa annað og þriðja sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.

Innlent