Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Kristján Már Unnarsson skrifar 31. ágúst 2026 22:40 Mateusz Swierczewski er rafvirkjameistari og sveitarstjórnarfulltrúi í Langanesbyggð. Hann er jafnframt í fjarnámi við Háskólann í Reykjavík í rafiðnfræði. Egill Aðalsteinsson 28 ára gamall Pólverji er sá sem íbúar Langanesbyggðar treysta best til forystu í sveitarfélaginu. Þar var persónukjör í kosningunum í vor og hlaut hann flest atkvæði.
Í kvöldfréttum Sýnar fórum við á Þórshöfn en þar búa núna um fimmtíu Pólverjar. Sigurvegarinn í síðustu sveitarstjórnarkosningum í vor er fæddur í Póllandi. Hann heitir Mateusz Swierczewski, er kallaður Matti, en hann og konan hans, Svanhildur Björt Siggeirsdóttir sjávarútvegsfræðingur, eiga tvö ung börn. Fjölskyldan á gangi við heimili sitt á Þórshöfn.Egill Aðalsteinsson -Það voru hérna sveitarstjórnarkosningar í vor, þetta var persónukjör og þú varst efstur. Hvað kom til? „Ég bara veit það ekki,“ svarar hann. Okkur er sagt að unga fólkið hafi fylkt sér að baki Matta eftir að hann fór að tjá sig á samfélagsmiðlum um hvernig mætti efla byggðina. „Fyrst og fremst vil ég gera Þórshöfn að aðlaðandi stað fyrir ungt fólk, sérstaklega fyrir ungt fjölskyldufólk,“ segir Mateusz. Úrslit síðustu sveitarstjórnarkosninga í Langanesbyggð. Þar komu engir listar fram. Því var persónukjör sem þýðir að allir kjörgengir einstaklingar voru í framboði og hlaut Matti flest atkvæði.grafík/Hjalti Freyr Ragnarsson Til þess segir hann þurfa fjölbreyttari störf fyrir vel menntað fólk og telur þau geta skapast með uppbyggingu í Finnafirði. „Bæði tengdum höfninni og vindmyllugarðinum. En líka afleidd störf sem geta komið út frá þessu tvennu.“ -Að þú skyldir verða efstur, heldurðu að þín áhersla á þetta mál hafi hjálpað til? „Persónulega held ég það, já.“ Teikning af höfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði.Grafík/Efla. Sjálfur er Matti menntaður rafvirkjameistari frá Verkmenntaskólanum á Akureyri. Hann starfar hjá fyrirtækinu Rafeyri á Akureyri en er með starfsstöð á Þórshöfn. „Það er meira en nóg að gera. Það er bæði Ísfélagið, það er nóg að gera þar, en svo er líka bara þorpið. Það er bara nóg af verkefnum.“ Hann var níu ára gamall þegar foreldrar hans fluttu frá Póllandi til Íslands. Áður var amma hans komin til landsins ásamt bróður sínum. -En hvernig var fyrir pólskan strák að koma í skóla á Þórshöfn og kannski á Raufarhöfn fyrst? „Það var hvellur. Það var menningarsjokk kannski og svo náttúrulega það að ég skildi ekki orð frá neinum. Skildi ekki heldur orð í ensku. Það tók sinn tíma að læra málið.“ Svanhildur Björt Siggeirsdóttir er í fæðingarorlofi frá starfi sínu sem verkstjóri hjá Ísfélaginu. Hún er sjávarútvegsfræðingur að mennt en stundar jafnframt nám í viðskiptafræði.Egill Aðalsteinsson Sambýliskonan Svanhildur segir Matta hafa gengið mjög vel að aðlagast Íslandi. „Hann náttúrulega gerði það bara ungur þegar hann kom. Þannig að ég held að það sé mjög auðvelt þegar þú kemur sem barn í svona bæ að aðlagast og komast inn í samfélagið.“ -Heldurðu að hann verði bara Íslendingur? „Já, hann er náttúrulega örugglega búinn að.. - já, hann er búinn að búa hérna í fleiri ár en í Póllandi,“ segir Svanhildur. Matti er bæði með pólskan og íslenskan ríkisborgararétt. „Ég get ekki sagt þér með hverjum ég myndi halda ef Pólland-Ísland væri að spila í fótbolta. Það er kannski bara með liðinu sem vinnur,“ segir hann hér í sjónvarpsfrétt Sýnar:
Langanesbyggð Pólland Sveitarstjórnarkosningar 2026 Rafmagn Vindorka Tengdar fréttir Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Sveitarstjórn Langanesbyggðar hefur ákveðið kanna hug íbúa til áforma um gerð vindmyllugarða í sveitarfélaginu og iðnaðarsvæðis við Finnafjörð í tengslum við gerð stórskipahafnar. Málið þykir heitt meðal íbúa en oddvitinn segir niðurstöðurnar verða hafðar til hliðsjónar við framhald málsins. 25. ágúst 2026 23:23 Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Oddviti Langanesbyggðar, Sigurður Þór Guðmundsson, var síðasti maður sem komst inn í sveitarstjórn í kosningunum í gær. Kosningarnar í Langanesbyggð voru óbundnar en þá eru engir framboðslistar lagðir fram heldur geta kjósendur kosið hvaða kjörgenga íbúa sem er. 17. maí 2026 09:23 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Sveitarstjórn Langanesbyggðar hefur ákveðið kanna hug íbúa til áforma um gerð vindmyllugarða í sveitarfélaginu og iðnaðarsvæðis við Finnafjörð í tengslum við gerð stórskipahafnar. Málið þykir heitt meðal íbúa en oddvitinn segir niðurstöðurnar verða hafðar til hliðsjónar við framhald málsins. 25. ágúst 2026 23:23
Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Oddviti Langanesbyggðar, Sigurður Þór Guðmundsson, var síðasti maður sem komst inn í sveitarstjórn í kosningunum í gær. Kosningarnar í Langanesbyggð voru óbundnar en þá eru engir framboðslistar lagðir fram heldur geta kjósendur kosið hvaða kjörgenga íbúa sem er. 17. maí 2026 09:23