Viðskipti innlent

Reynir á þolmörk flug­manna og svig­rúm Icelandair

Birgir Olgeirsson skrifar
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari er með deilu flugstétta og Icelandair á sínu borði. Jón Þór Þorvaldsson til vinstri við Ástráð er formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna og jafnframt flugmaður hjá fyrirtækinu. Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair, til hægri á myndinni.
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari er með deilu flugstétta og Icelandair á sínu borði. Jón Þór Þorvaldsson til vinstri við Ástráð er formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna og jafnframt flugmaður hjá fyrirtækinu. Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair, til hægri á myndinni.

Kjaradeila Icelandair og flugmanna snýst nú um það hversu langt flugmenn eigi að ganga til að liðka fyrir rekstri félagsins. Þeir gáfu verulega eftir í endurreisn Icelandair árið 2020, en félagið sækist nú eftir auknu svigrúmi til að bregðast við taprekstri, harðnandi samkeppni og breyttu flugrekstrarumhverfi. Fundur deiluaðila hjá ríkissáttasemjara í dag snerist meðal annars um flugtíma, hvíld, vaktir og frí; veigamikil atriði í deilunni sem ráða miklu um bæði vinnuskilyrði flugmanna og framleiðni Icelandair.

Samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) munu funda aftur klukkan 10 að morgni öðrum degi hvítasunnu. Þetta var niðurstaða fundar sem nefndirnar áttu hjá ríkissáttasemjara í dag. 

Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari er með deilu Icelandair við FÍA annars vegar og flugvirkja hins vegar á sínu borði. Hann segir fundinn með FÍA og Icelandair í dag hafa fjallað um flugtíma, frí, hvíldartíma og vaktir flugmanna sem séu atriði sem skipta miklu máli um vinnuskilyrði flugmanna og hafa mikil áhrif á framleiðni Icelandair. Þeir sem sátu fundinn í dag sammæltust um að afla frekari gagna og teikna upp sviðsmyndir um helgina sem verða skoðaðar á fundinum á mánudag.

„Samtalið hefur sem sagt þróast áfram með jákvæðum hætti í dag,“ segir Ástráður í samtali við Vísi.

Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari er með kjaradeilur flugstétta við Icelandair á sínu borði. Vísir/Vilhelm

Samninganefndir Icelandair og flugvirkja munu funda aftur á þriðjudag en ekki hefur verið mikil hreyfing á samtalinu þar að sögn Ástráðs.

Í báðum tilvikum snýst þó vinnan um að samrýma framtíðarsýn þessara aðila, annars vegar Icelandair og hins vegar flugmanna og flugvirkja, um hvernig þeir ætla að vera til í sameiningu. Icelandair hefur staðið frammi fyrir miklum áskorunum síðustu ár og það sem af er þessari öld hafa orðið miklar breytingar á rekstrarumhverfi félagsins með tilkomu tæknibreytinga og aukinnar samkeppni. Þá hafa ytri áföll einnig sett svip sinn á rekstur félagsins á borð við jarðhræringar, heimsfaraldur kórónuveirunnar og vandkvæði með Max-þoturnar frá Boeing.

Því ríður á að félagið og starfsmenn geti í sameiningu séð fyrir sér hvernig þau vilja búa um sína framtíð.

Síðasti samningurinn fól í sér meiri nýtingu

Icelandair og FÍA gerðu síðast kjarasamning árið 2020 en fjallað var um hann í fjárfestakynningu fyrir útboð Icelandair sama ár.

Þar er komið inn á vinnuframlag flugmanna Icelandair. 

Samkvæmt reglum EASA, flugöryggisstofnunar Evrópusambandsins, er almennt hámark flugtíma á almanaksári fyrir flugmenn 900 flugtímar. Í fjárfestakynningunni var sagt frá því að raunhæft hámark flugmanna Icelandair væri um 725 flugtímar á ári miðað við leiðakerfi félagsins. Samningurinn sem var gerður árið 2020 hljóðaði upp á að flugtími hvers flugmanns færi úr 525 flugtímum á ári í 640 flugtíma ári, sem er aukning um 22 prósent.

Vinnuframlag jókst um 22% eftir að skrifað var undir síðasta kjarasamning árið 2020. Vísir/Anton Brink

Þessi samningur fól því í sér meiri nýtingu vegna rýmri ákvæða um vaktir, hvíld, frídaga og færri orlofsdaga sem gerði flug til Suður-Evrópu, vesturstrandar Bandaríkjanna og nýrri markaða raunhæfara.

Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Icelandair náð að auka nýtingu flugmanna á samningstímanum umfram þessa 640 flugtíma á ári. Flugmennirnir hafa samkvæmt samningnum verið í launafrosti í þrjú ár en fengu launahækkun á samningstímanum sem nam 90% af vísitöluhækkun.

Lækkaði launakostnað um 17 milljónir dollara

Flugtímar flugmanna byrja að telja þegar flugvél er ýtt frá hliði og hætt er að telja þegar flugvélin er stöðvuð við hlið. Þetta á því ekki við um aðra vinnu sem flugmenn sinna á borð við að vera á bakvakt, sækja námskeið og sitja í flughermum.

Ein af Airbus-farþegaþotum Icelandair. Flugtími flugmanna byrjar þegar þotunni er ýtt frá hliði og lýkur þegar þotunni er lagt við hlið. Icelandair/Airbus

Þessi 22 prósenta aukning á nýtingu flugmanna átti samkvæmt fjárfestakynningunni að skila 22 prósenta framleiðniaukningu og 25 prósenta lækkun á CASK, sem er kostnaður á hvern floginn sætiskílómetra. Samningurinn hafi þar með lækkað kostnað Icelandair um 17 milljónir Bandaríkjadala árið 2020, sem nam um 2,3 milljörðum íslenskra króna á gengi þess árs. 

Því er ljóst að flugmenn á vegum FÍA gáfu talsvert eftir í síðustu samningaviðræðum sem voru liður í endurreisn félagsins. FÍA mun því væntanlega reyna að koma í veg fyrir að gengið verði frekar á réttindi þeirra í þessari kjaradeilu.

Alþingi samþykkti ábyrgð

Hluti af þeirri endurreisn félagsins var hlutafjárútboð sem naut sölutryggingar ríkisbankanna Landsbankans og Íslandsbanka. Ekki reyndi á þá sölutryggingu því þátttaka almennings var mikil og safnaðist nægjanlega mikið hlutafé.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, er með ærið verkefni á sínum höndum. Að snúa rekstri Icelandair við í erfiðu rekstrarumhverfi þar sem olíuverð hefur verið í sögulegum hæðum, samkeppni mikil og deilur við flugstéttir sem þarf að leysa úr.Lýður Valberg

Þá hétu ríkisbankarnir tveir því að leggja fram rekstrarlínu upp á samtals sjö milljarða króna sem Icelandair gat sótt, Íslandsbanki fjóra milljarða og Landsbankinn þrjá. Þá var einnig lögð til þrautavaralánalína upp á 16,5 milljarða króna frá bönkunum tveimur ef annar peningur væri uppurinn. Alþingi hafði samþykkt að ábyrgjast 90 prósent lánalínunnar.

Hins vegar hefur endurreisn Icelandair mögulega ekki gengið eins og vonir stóðu til. Félagið hefur tapað talsverðu fé frá því endurreisn átt sér stað og hefur félagið sagt opinberlega að það leitist við að geta skotið fleiri stoðum undir reksturinn og brugðist við árstíðarsveiflum og breytingum á samkeppnisumhverfi en núverandi kjarasamningar leyfa.

Tap á rekstrinum frá síðasta samningi

Félagið skilaði hagnaði árið 2017 upp á 37,5 milljónir Bandaríkjadala eftir skatta. Frá árinu 2018 hefur félagið skilað tapi að undanskildu árinu 2023.

 Frá 2018 nemur samanlagt tap félagsins 619 milljónum Bandaríkjadala eftir skatta, en þar munar að sjálfsögðu mestu um tapið árið 2020, þegar heimsfaraldur kórónuveirunnar lagðist yfir heimsbyggðina af fullum þunga, sem telur tæp 61 prósent eða 376 milljónir Bandaríkjadala. 

Losunargjöld hafa verið þungur baggi á rekstri Icelandair en frá árinu 2022 hefur kostnaðurinn numið 94 milljónum dollara. Vísir/Vilhelm

Frá árinu 2022 hafa losunargjöld Icelandair numið tæpum 94 milljónum Bandaríkjadala, þar af 35 milljónum dollara árið 2025.

Forgangsákvæðið rætt hjá ríkissáttasemjara

Icelandair hefur því leitað leiða til að auka hagkvæmni í rekstri, opnað útibú í Litháen, gert breytingar á leiðakerfi svo framboðið endurspegli eftirspurnina, skipt yfir í nýrri og sparneytnari þotur og þá hefur félagið tilkynnt viðræður um kaup á 49 prósenta hlut í Play Europe á Möltu og fengi þar með aðgang að flugrekstrarleyfi þar.

FÍA hefur ekki verið sátt við hugmyndir Icelandair um að kaupa sig inn í félagið á Möltu og hefur formaður félagsins, Jón Þór Þorvaldsson, sem einnig er flugmaður hjá Icelandair, sagt opinberlega að með þessu ætli Icelandair sér að færa hluta starfsemi félagsins út fyrir íslenska kjarasamninga.

Deilan hjá sáttasemjara hefur einmitt fjallað um þetta atriði en það varðar forgangsákvæði félagsmanna FÍA í öll flug sem Icelandair flýgur hvar sem er í heiminum. Verði það svo áfram þyrfti Icelandair ávallt að notast við starfsmenn Icelandair sem eru hjá FÍA til að fljúga þeim flugvélum sem reknar eru á maltneska flugrekstrarleyfinu. Hefur félagið kallað eftir breytingum á því fyrirkomulagi til að geta skotið fleiri stoðum undir reksturinn í harðnandi samkeppnisumhverfi.

Þá hefur einnig verið rædd hugmynd sem Icelandair hefur talað fyrir sem myndi opna á samninga við önnur flugfélög um svokallaða blautleigu, þar sem Icelandair myndi leigja flugvél með áhöfn til að sinna flugi fyrir félagið.

Áfram verður funda í deilunni á mánudag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×