Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Hólmfríður Gísladóttir skrifar 22. maí 2026 06:59 Ef marka má færslu Trump á Truth Social þá má þakka ákvörðun hans Karol Nawrocki, forseta Póllands. Trump lýsti yfir stuðningi við hann fyrir forsetakosningarnar í fyrra. Hvíta húsið Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur greint frá því að hann hyggist senda 5.000 hermenn til Póllands, aðeins nokkrum dögum eftir að varnarmálaráðuneytið tilkynnti að ekkert yrði af fyrirhuguðum 4.000 manna flutningi þangað.
JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, hafði varið þá ákvörðun og sagt að Bandaríkin vildu að Evrópa axlaði aukna ábyrgð á eigin vörnum. „Pólland getur varið sig með miklum stuðningi frá Bandaríkjunum,“ sagði hann. Ákvörðunin var hins vegar gagnrýnd af þingmönnum. Eins og sakir standa eru um 10.000 bandarískir hermenn í Póllandi. Ekki er vitað hvort um varanlega viðbót er að ræða eða hvort umræddir hermenn munu koma frá Þýskalandi, þaðan sem Trump hefur ákveðið að færa 5.000 hermenn. Utanríkisráðherrann Marco Rubio mun sækja ráðherrafund Nató-ríkjanna í Svíþjóð í dag en áður en hann sagði í gær að Trump hefði orðið fyrir miklum vonbrigðum með þau aðildarríki sem hefðu ekki viljað leyfa Bandaríkjunum að nota herstöðvar sínar í tengslum við aðgerðir Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran. Nefndi hann Spán sérstaklega. Rubio sagði ekki óeðlilegt að spyrja hvers vegna þessi ríki ættu aðild að Nató ef þau vildu ekki aðstoða Bandaríkjamenn. Þess ber hins vegar að geta að Nató er varnarbandalag og þá ráðfærði Bandaríkjastjórn sig ekki við bandamenn sína áður en það hóf árásir á Íran. Pólverjar verða að öllum líkindum ánægðir með ákvörðun Trump, þar sem þeir eru afar uggandi vegna ágengni Rússa.
Bandaríkin Donald Trump Pólland NATO Mest lesið Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Fleiri fréttir Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Sjá meira