Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 21. maí 2026 14:49 Karólína Helga Símonardóttir er oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði Oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði segir samstarf við Framsókn ekki lengur spennandi kost vegna meints trúnaðarbrests oddvita flokksins. Þá segir hún erfitt að sjá fyrir sér meirihluta með Miðflokki. Möguleikar Framsóknar á að komast í meirihluta í bænum virðast því úti.
Greint var frá því fyrr í dag að bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði hafi ákveðið að slíta viðræðum við Framsókn um meirihlutasamstarf vegna alvarlegs trúnaðarbrests. Þá sagðist oddviti Samfylkingar í samtali við Vísi einnig útiloka samstarf við flokkinn. Sagði hún Samfylkingu hafa átt í þreifingum með Framsókn og Viðreisn og verið komin langt í þeim þreifingum þegar þeim hafi verið tilkynnt að Framsókn myndi fara í formlegar viðræður við Sjálfstæðisflokk. Sjálfur hefur Valdimar Víðisson hafnað þessum ásökunum. Karolína Helga Símonardóttir oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði segir í samtali við Vísi að hún hafi á þriðjudag handsalað samkomulag við Valdimar Víðisson oddvita Framsóknar og Hildi Rósu Guðbjargardóttur oddvita Samfylkingar um að hefja formlegar meirihlutaviðræður. Því hafi tilkynning um formlegar viðræður Framsóknar og Sjálfstæðisflokks komið þeim í opna skjöldu. Útilokar þú samstarf við Framsókn eftir þetta? „Já, það verður bara að segjast að það er aldrei ábyrgðarfullt að útiloka flokka en ef þú ert að horfa á það að eiga í góðu og traustu sambandi við flokka til fjögurra ára og það byrjar á svona grunni, þá er það ekki spennandi.“ Hún segir oddvita núna þurfa tíma til að fara yfir stöðuna. Viðreisn muni ekki víkja undan ábyrgð þegar komi að því að mynda starfhæfan meirihluta fyrir Hafnarfjörð. Aðrir möguleikar í stöðunni eru sem dæmi meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar eða þá Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Miðflokks. Karolína segist ekki hafa átt í þreifingum við aðra oddvita eftir nýjustu vendingar. Getur þú hugsað þér samstarf við Miðflokkinn? „Nei, það er alveg ljóst hjá okkur í Viðreisn að það þyrfti ansi mikið að ganga á til þess.“
Hafnarfjörður Sveitarstjórnarkosningar 2026 Viðreisn Framsóknarflokkurinn Miðflokkurinn Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira