Vel fór á með Hildi og oddvitunum þremur í Hannesarholti Oddur Ævar Gunnarsson og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 20. maí 2026 14:27 Hildur ræddi við fréttastofu eftir fund sinn með oddvitum hinna flokkanna. Vísir/ÍVar Fannar Vel fór á með oddvitum Sjálfstæðisflokks, Framsóknar, Miðflokks og Viðreisnar á tveggja tíma hádegisfundi að sögn Hildar Björnsdóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins. Hún segir þó enga sérstaka niðurstöðu liggja fyrir hvað varðar myndun meirihluta og segist þurfa að ráða ráðum sínum hvað varðar næstu skref. „
Það fór bara vel á með okkur oddvitunum. Þetta eru oddvitar þeirra flokka sem við köllum borgaralegu öflin í Reykjavík og ég hafði lýst því yfir að mér finndist rétt að við settumst niður saman,“ segir Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík að loknum fundi. Fundurinn var tveggja tíma langur. Hinir oddvitarnir báðust undan viðtölum við fréttastofu og sögðu rétt að Hildur væri málsvari hópsins. Hildur segir gott að hafa sest niður með þeim Ara Edwald oddvita Miðflokksins, Björgu Magnúsdóttur oddvita Viðreisnar og Einari Þorsteinssyni oddvita Framsóknar. Þeim hafi tekist að ræða sameiginlega fleti á stefnumálum sínum og finna núningspunkta. Engin sérstök niðurstaða liggi hinsvegar fyrir að loknum fundi en hún segist fara nestuð inn í framhaldið. Ljóst sé að hún horfi ekki til samstarfs við aðra flokka. Hvert verður framhaldið? „Ég ætla bara að fá að ráða ráðum mínum. Það kemur allt saman í ljós.“ Hvaða núningspunktar komu í ljós? „Það er ekkert sérstakt sem ég vil greina frá,“ segir Hildur. Hún segir þó samhljóm á milli flokkanna í ýmsu, meðal annars þegar komi að niðurskurði í rekstri borgarinnar, fara í nýjar leiðir í leikskólamálum og blása til sóknar í skólamálum.“ Hvernig fór á á milli Ara og Björgu? „Það var bara hlegið og það var bara gaman. Við vorum að ræða þung má lgo létt mál og mál líðandi stundar. Hvernig sem þetta endar mun fara vel með á okkur í borgarstjórn,“ segir Hildur. Fundurinn hafi verið góður og bauð Hildur að eigin sögn upp á fisk dagsins, þorsk sem allir hafi fengið sér, utan Einars sem fékk sér afgangspasta í hádegsimat. Hildur segir ekki komna lendingu í það hvernig meirihluti verði stofnaður. Málefnin ráði för. „Borgarbúar hafa kallað eftir breytingum. En ég held þeir vilji líka stöðugleika, við erum að koma úr kjörtímabili með þrjá borgarstjóra, við viljum ná stöðugleika en líka blása til sóknar.“ Hver verða næstu skref, muntu boða oddvita í formleg samtöl? „Ég hef ekki ákveðið næstu skref. Ég ætla að vanda mig í þessu, það er mikilvægt að Reykjavík fái öflugan meirihluta.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Erlent Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Innlent Vel fór á með Hildi og oddvitunum þremur í Hannesarholti Innlent Ríkið skerst í leikinn í von um að samningar haldi Innlent Streymdu árásinni í beinni á netinu Erlent „Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ Innlent Óska eftir vitnum að líkamsárás í Lækjargötu Innlent Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Erlent Trump tókst að fella Massie Erlent Fleiri fréttir Greiðvikni kom í bakið á fjórum Ásthildur hættir sem bæjarstjóri á Akureyri Samningur í höfn á Akureyri: „Algjörlega, það er staðan“ Aðför sem krefjist þess að talað sé um kvenréttindi frekar en kynjajafnrétti Vel fór á með Hildi og oddvitunum þremur í Hannesarholti Jóhannes Einarsson verkfræðingur látinn Óska eftir vitnum að líkamsárás í Lækjargötu Ríkið skerst í leikinn í von um að samningar haldi Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Fjölgun hælisleitenda í Reykjanesbæ sé engin Hefja formlegar viðræður um áframhaldandi samstarf Stýrivextir enn á uppleið og þreifingar um myndun meirihluta Hækka leigu stúdenta Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Um 250 ábendingar um netbrot í nýja netgátt Umferðarstýring á 1,4 kílómetra kafla við Þingborg í dag „Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Boeing 757-þotan lifir lengur hjá Loftleiðum Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Flestir strikuðu yfir Ásdísi Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Aðildarviðræður gætu kostað tæpa tvo milljarða Nýjustu vendingar, sviðin píla á vettvangi og kaldar móttökur Maðurinn með hnífinn enn ófundinn „Stefnir í ansi góðan sumardag“ Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Átján ára sótti áfengissendingu Sjá meira
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent