Innlent

Loka­tölur í Reykja­vík: Sjálf­stæðis­flokkurinn nær níunda manni inn

Agnar Már Másson skrifar
Hildur Björnsdóttir í sigurvímu eftir sigur Sjálfstæðisflokksins.
Hildur Björnsdóttir í sigurvímu eftir sigur Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Vilhelm

Samkvæmt lokatölum í Reykjavík fær Sjálfstæðisflokkurinn níu borgarfulltrúa og getur enn myndað tveggja flokka meirihluta með Miðflokki eða þriggja flokka meirihluta með Viðreisn og Framsókn.

Alls greiddu 71.976 atkvæði í höfuðborginni en 108.518 voru á kjörskrá. Auðir seðlar voru 1.107 og ógildir voru 2.028.

Sjálfstæðisflokkurinn hlýtur 22.930 atkvæði (32,5 prósent) og fær því níu fulltrúa. Bjarni Fritzson kemst því inn. 

Miðflokkurinn fékk 8.912, eða 12,4 prósent, og fær því þrjá borgarfulltrúa. 

Framsókn fær 4.805 atkvæði (6,7 prósent) og einn borgarfulltrúa. Magnea Gná dettur því aftur út úr borgarstjórn. 

Viðreisn fær 7.436 atkvæði (10,3 prósent) og tvo fulltrúa. 

Vinstrið fær 6.649 atkvæði (9,2 prósent) og tvo borgarfulltrúa fyrir vikið.

Sósíalistaflokkurinn fær 2.858 atkvæði (4 prósent) og nær því einum fulltrúa inn.

Samfylkingin fær 12.737 atkvæði (17,7 prósent) og nær því fimm mönnum inn í borgarstjórn.

Flokkur fólksins hlýtur 2.319 atkvæði (3,2 prósent) og fær engan fulltrúa. Góðan daginn fær 361 og engan borgarfulltrúa. Píratar hljóta 1.348 atkvæði og ná ekki manni inn. Okkar borg nær heldur ekki manni inn þar sem framboðið fær aðeins 306 atkvæði, eða 0,4 prósent.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×