„Þetta var vont“ Kolbeinn Kristinsson skrifar 11. maí 2026 20:48 Valsstelpurnar hans Matthíasar Guðmundssonar hafa tapað þremur leikjum í röð. vísir/vilhelm Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, var eðlilega svekktur eftir grátlegt 3-2 tap gegn Breiðabliki í kvöld.
Valur var 2-1 yfir lengi vel þrátt fyrir að hafa misst Hrafnhildi Sölku Pálmadóttur af velli með rautt spjald í fyrri hálfleik. Breiðablik jafnaði hins vegar í uppbótartíma og tryggði sér svo sigurinn með marki nánast í blálokin. „Ég held að það sé komin þreyta, það er pottþétt. Það er pottþétt komin þreyta,“ sagði Matthías þegar hann var spurður hvort einbeitingarleysi eða þreyta hefði spilað inn í lokakaflann. Hann sagðist þurfa að horfa á lokamínúturnar aftur áður en hann gæti dæmt þær almennilega. „Ég á eftir að sjá það aftur. Ég á eftir að velta því fyrir mér hvort við hefðum ekki átt að halda áfram að sparka útsparkinu bara í hina áttina eða eitthvað. Maður sér þetta þegar maður horfir á leikinn aftur.“ Matthías leyndi því ekki að atburðarásin hefði verið sár. „Það er pottþétt komin þreyta. En þetta var vont, að fá rautt spjald í fyrri hálfleik.“ Hrafnhildur Salka fékk rauða spjaldið eftir atvik þar sem hún togaði í hár leikmanns Breiðabliks. Matthías vildi ekki kenna henni um niðurstöðuna. „Eins og oft þegar maður fær rautt spjald þá hefur maður svo sem ekkert að segja. Ég veit að Hrafnhildur Salka var ekki að gera þetta viljandi. Ég er ekki búinn að sjá þetta en ef hún togar í hárið á henni þá er það rautt spjald.“ Þrátt fyrir mótlætið var Matthías stoltur af því hvernig lið hans brást við manni færra. „Við gerðum allt. Við unnum eins og lið eftir það. Þær voru ekki að ná að skapa mikið,“ sagði Matthías.
Besta deild kvenna Valur Breiðablik Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira