Kosningaspá Vísis: Baráttan færist á aftari sætin og sótt að Miðflokki og Samfylkingu Birgir Olgeirsson skrifar 7. maí 2026 12:05 Baldur Héðinsson, stærfræðingur sem gerir kosningaspá Vísis, segir að flokkarnir sem séu að sækja í sig veðrið séu að öllu líkindum að gera það á kostnað Miðflokksins og Samfylkingarinnar. Ara Edwald, oddvita Miðflokksins, og Pétri Marteinssyni, oddvita Samfylkingarinnar, vonast líklegast til að sú þróun haldi ekki áfram en staðan gæti breyst hratt í aðdraganda kjördags þegar kannanir verða birta örar. Nýjasta kosningaspá Vísis bendir til þess að víglínan í borgarstjórnarkosningunum hafi færst. Fyrir fáeinum vikum snerist mesta spennan um það hvaða flokkar sem hafa mælst með lítið fylgi í könnunum næðu inn manni, en nú er baráttan í auknum mæli komin yfir á aftari sætin hjá framboðum sem hafa verið að mælast með meira fylgi.
Sjálfstæðisflokkurinn er á hraðri siglingu, Viðreisn sækir í sig veðrið og samkvæmt túlkun Baldurs Héðinssonar, stærðfræðings sem gerir Kosningaspá Vísis, eru það einkum Miðflokkurinn og Samfylkingin sem finna fyrir því. Samfylking í hættu á að missa fimmta borgarfulltrúann Stóra myndin í spánni er annars vegar sú að Sjálfstæðisflokkurinn hefur aukið forskot sitt verulega og nálgast nú tíu prósentustiga forskot á Samfylkinguna, og hins vegar að það breytir því hvar síðustu sætin í borgarstjórn lenda. Sjálfstæðisflokkurinn nálgast þrjátíu prósenta fylgi samkvæmt spánni og Samfylkingin er komin niður fyrir tuttugu prósent. Á sama tíma eru meiri líkur en minni á að Sjálfstæðisflokkurinn fái sjö borgarfulltrúa og áttundi maður listans, Bjarni Fritzson, er kominn með tæplega helmingslíkur á kjöri. Samfylkingin, sem fyrir mánuði stefndi á sex menn, er nú í þeirri stöðu að fimmti maður listans, Stein Olav Romslo, er kominn niður í um sextíu prósent líkur á kjöri. Sveiflurnar breyta víglínunni Baldur segir að það sem skipti mestu máli núna sé ekki aðeins hver mælist stærstur heldur hvernig sveiflurnar breyti sjálfri víglínunni. Hann bendir á að síðustu sætin sem nú séu helst undir pressu séu annað sæti Miðflokksins, fimmta sæti Samfylkingarinnar og þriðja sæti Viðreisnar. Um leið sé baráttan ekki lengur jafn mikið bundin við flokka sem hafi verið að dansa á mörkum þess að ná inn einum manni. Borgarstjórn Reykjavíkur kosningaspá 7. maí „Stóra myndin er að það er náttúrulega töluverð sveifla þarna til Sjálfstæðisflokksins og að sama skapi eru Samfylking og Miðflokkur að dala. Og þetta er dálítið mikið að breyta myndinni, svona hvernig fulltrúar eru að raðast inn í borgarstjórn og sérstaklega þá hvar baráttan er.“ Viðreisn og Sjálfstæðisflokkur herji á Miðflokk Í uppfærðri spá er Kristín Kolbeinsdóttir, annar maður Miðflokksins, nú með 58 prósent líkur á kjöri eftir að flokkurinn tapaði 3,3 prósentustigum milli Maskínukannana. Á móti hafa líkur Stefáns Pálssonar, þriðja manns Vinstrisins, haldið áfram að aukast og eru nú komnar í 80 prósent. Þorvaldur Davíð Kristjánsson, þriðji maður Viðreisnar, er sömuleiðis kominn í 62 prósent líkur á kjöri. Þessi tilfærsla styður þá mynd sem Baldur segist lesa út úr þróuninni, þótt hún komi ekki „beint út úr tölunum“. „Ef ég horfi á þessa mynd bara og reyni að lesa út úr henni hvað ég myndi halda, þá finnst mér nokkuð skýrt að Viðreisn og Sjálfstæðisflokkur herja á Miðflokkinn og svo eru Vinstrið og minni flokkarnir að herja á Samfylkinguna. En þetta kemur samt ekki fram nákvæmlega í tölunum. Þetta er eitthvað sem maður þarf að lesa meira út úr bara svona þróun í lengri tíma og svona hvernig fólk svarar spurningum yfir lengri tíma út frá því hvað það kýs. Þessi breyting hefur líka áhrif neðar á aðra flokka. Fyrir nokkrum vikum voru Framsókn, Píratar, Sósíalistar og Flokkur fólksins öll framboð sem mátti segja að væru í harðri baráttu um að ná einu sæti í borgarstjórn. Nú hefur sú mynd breyst. Framsóknarflokkurinn, Píratar og Sósíalistar virðast allir hafa styrkt stöðu sína í baráttunni um einn mann hver, en Flokkur fólksins hefur fjarlægst þá línu talsvert. Oddvitar Sósíalista, Framsóknar og Pírata eru nú allir með 60 prósent líkur eða meira á kjöri samkvæmt spánni, á meðan oddviti Flokks fólksins er aðeins með rúmlega fjórðungslíkur. Gæti breyst hratt Baldur bendir á að nú þegar styttist í kjördag munu kannanir berast hraðar og það geti breytt stöðunni aftur á skömmum tíma. Nýjasta uppfærsla kosningaspárinnar byggir á tveimur könnunum, þar sem Maskínukönnun frá 24. apríl til 6. maí vegur 55 prósent og Gallup-könnun frá 16. til 29. apríl vegur 45 prósent. Baldur segir því að þótt víglínan sé skýrari í dag geti hún hæglega færst á ný áður en kjósendur ganga til atkvæða. „Miðað við hvað er mikið að hreyfast núna á milli kannana þá eru held ég bara miklar líkur á að það verði frekari breytingar og baráttan gæti þess vegna færst miðað við hvernig hún er núna.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kosningaspá Vísis Samfylkingin Flokkur fólksins Viðreisn Sósíalistaflokkurinn Píratar Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Framsóknarflokkurinn Okkar borg Góðan daginn Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Pútín sló öll met Erlent Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Innlent Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Innlent Fleiri fréttir Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Sjá meira