Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Árni Sæberg skrifar 28. apríl 2026 16:22 Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm í málinu í gær. Vísir/Vilhelm Karlmaður á fertugsaldri hefur verið dæmdur til átta mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa fróað sér á almannafæri og haft talsvert magn teiknaðs barnaníðsefnis í vörslum sínum. Fimm mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir.
Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp í gær, segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir kynferðisbrot, með því að hafa að morgni sunnudags í september árið 2025, utandyra í Reykjavík, berað kynfæri sín og fróað sér og þannig sýnt af sér ósiðlegt og lostugt athæfi, sem hafi verið til þess fallið að særa blygðunarsemi þeirra sem urðu vitni að því og verið til opinbers hneykslis. Þá hafi hann verið ákærður fyrir kynferðisbrot með því að hafa, laugardag í júlí 2023 og um langt skeið fram til þess dags, á dvalarstað sínum í Reykjavík, haft í vörslum sínum teiknað efni, alls 2.060 ljósmyndir, 41 hreyfimynd í GIF skráarformi og 49 myndskeið sem sýna börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt, sem hann geymdi á farsíma sínum, Samsung Galaxy J5, sem haldlagður var af lögreglu við húsleit. Framið svipuð brot áður Maðurinn hafi játað brot sín skýlaus og því hafi verið farið með málið sem játningarmál og það dómtekið án frekari sönnunarfærslu. Samkvæmt sakarvottorði hans hafi hann með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá árinu 2020 verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir blygðunarsemisbrot. Með dómi sama dómstóls frá 2023 hafi hann verið dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslur á barnaníðsefni, en um hafi verið að ræða hegningarauka við fyrrgreindan dóm. Sakaferill hans hafi að öðru leyti ekki þýðingu við úrlausn málsins. Með brotinu árið 2023 hafi hann rofið skilorð dómsins frá 2023. Beri því í samræmi við ákvæði almennra hegningarlaga að taka refsingu þess dóms upp og dæma honum nú refsingu í einu lagi eftir reglum almennra hegningarlaga. Brotið sé jafnframt ítrekun á broti því sem hann var þá dæmdur fyrir, en af því leiði að hækka megi refsingu fyrir brotið nú þannig að bætt sé við hana allt að helmingi hennar. Til þess gert að styrkja vernd barna Við ákvörðun refsingar sé litið til greiðrar játningar mannsins, sem horfi til mildunar. Hann hafi verið samvinnufús og afhent lögreglu að eigin frumkvæði gögn varðandi brot hans árið 2023. „Þrátt fyrir að um sé að ræða teiknaðar myndir og myndskeið ber að líta til þess að markmið refsinga fyrir vörslur á efni af þessu tagi, sem sýnir börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt, er að styrkja vernd barna gegn kynferðislegri misnotkun, m.a. í tengslum við gerð slíks efnis. Er sérstaklega að því vikið í athugasemdum með 210. gr. a almennra hegningarlaga, í frumvarpi því sem varð að lögum nr. 58/2012, að efni af þessu tagi geti verið fallið til þess að hvetja til brota gegn börnum þótt brotið sem slíkt beinist í reynd ekki gegn barni. Þá var hámarksrefsing fyrir brot gegn ákvæðinu hækkuð úr 2 árum í 6 ár með lögum nr. 29/2022.“ Með hliðsjón af því og drætti á meðferð málsins frá 2023 þyki refsing hans hæfilega ákveðin átta mánaða fangelsisvist en með hliðsjón af samvinnuvilja hans og vilja til að leita sér aðstoðar þyki rétt að fresta fullnustu fimm mánaða af refsingunni og falli sá hluti refsingarinnar niður að liðnum tveimur árum. Ekki tilbúinn til að leita sér aðstoðar þá en fær annan séns Loks segir að maðurinn hafi sagst ekki hafa verið tilbúinn til þess að leita sér faglegrar aðstoðar í samræmi við skilyrði í fyrrgreindum dómi frá 2023, en teldi sig tilbúinn til þess nú. „Telur dómurinn rétt að binda frestun á fullnustu refsingar ákærða sömu skilyrðum samkvæmt 1. tl. 3. mgr. 57. gr. almennra hegningarlaga, og skal ákærði sæta sérstakri umsjón og meðferð hjá úrræðinu Taktu skrefið eins og ástæða þykir til og ekki sjaldnar en fjórum sinnum á ári. Þá skal ákærði hlíta fyrirmælum umsjónaraðila.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira